Flestir treysta Kristrúnu

Spurt var: Hvaða formanni íslenskra stjórnmálaflokka treystir þú best? Flestir svöruðu: Kristrúnu Frostadóttur, formanni Samfylkingarinnar. Katrín Jakobsdóttir er í öðru sæti.

Kristrún Frostadóttir, formaður Samfylkingarinnar.
Kristrún Frostadóttir, formaður Samfylkingarinnar.
Auglýsing

Kristrún Frosta­dótt­ir, for­maður Sam­fylk­ing­ar­inn­ar, er sá stjórn­mála­leið­togi sem lands­menn treysta best sam­kvæmt nýrri könnun Pró­sents. Nið­ur­stöð­urnar eru birtar í Frétta­blað­inu í dag. Katrín Jak­obs­dótt­ir, for­maður Vinstri grænna, er sá leið­togi sem næst­flestir treysta og á hæla hennar kemur Bjarni Bene­dikts­son, for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins.

Auglýsing

Katrín Jak­obs­dóttir hefur líkt og rifjað er upp í Frétta­blað­inu lengi verið sá stjórn­mála­leið­togi sem lands­menn treysta best. Nú bregður svo við að Kristrún nýtur trausts 25,4 pró­senta þeirra sem tóku afstöðu í könn­un­inni en Katrín 17,5 pró­senta. 15,4 pró­sent segj­ast treysta Bjarna Bene­dikts­syni best allra for­manna flokk­anna. 11,3 pró­sent treysta Sig­urði Inga Jóhanns­syni, for­manni Fram­sókn­ar­flokks­ins, mest og 9,7 pró­sent treysta Þor­gerði Katrínu Gunn­ars­dótt­ur, for­manni Við­reisn­ar, best.

Í Frétta­blað­inu er rifjað upp að í októ­ber í fyrra, rétt fyrir Alþing­is­kosn­ing­arn­ar, hafi 57,6 pró­sent lands­manna viljað Katrínu Jak­obs­dóttur sem for­sæt­is­ráð­herra sam­kvæmt könnun Mask­ínu. Eng­inn annar leið­togi náði 10 pró­sentum í þeirri könn­un.

Stuðn­ingur út fyrir raðir Sam­fylk­ing­ar­fólks

Fyrir utan yfir­gnæf­andi stuðn­ing innan Sam­fylk­ing­ar­innar nýtur Kristrún sam­kvæmt könnun Pró­sents nú umtals­verðs stuðn­ings kjós­enda ann­arra flokka. 53 pró­sent kjós­enda Sós­í­alista­flokks­ins treysta henni best, svo dæmi sé tekið og 23 pró­sent þeirra sem kjósa Við­reisn.

Katrín Jakobsdóttir, formaður Vinstri grænna og forsætisráðherra. Mynd: Bára Huld Beck

Katrín er sá for­maður sem nýtur mests stuðn­ings innan eigin flokks sam­kvæmt könn­un­inni en 90 pró­sent kjós­enda VG treysta henni best. Katrín nýtur einnig stuðn­ings 15 pró­senta sjálf­stæð­is­manna, 14 pró­senta sós­í­alista og 13 pró­senta fram­sókn­ar­manna.

72 pró­sent sjálf­stæð­is­manna treysta Bjarna best. Sam­kvæmt Frétta­blað­inu hefur nær engan stuðn­ing út fyrir sinn flokk­inn, nema 7 pró­sent hjá kjós­endum Mið­flokks­ins.

Katrín er sá for­maður sem nýtur mests traust hjá ungu fólki en Kristrún hefur mestan stuðn­ing hjá kjós­endum 55 ára og eldri.

Könnun Pró­sents var gerð 14. til 17. nóv­em­ber. Úrtakið var 2.600 og svar­hlut­fallið 51,3 pró­sent.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent