Alls 317 á biðlista eftir því að komast í afplánun í fangelsi – Þar af 38 konur

Dómsmálaráðherra er sammála umboðsmanni Alþingis um að tilefni sé til að skoða hvort það halli á konur innan fangelsiskerfisins. Eina opna fangelsið sem stendur konum til boða er Sogn, sem þykir ekki jafn eftirsóknarvert og Kvíabryggja.

Sex konur voru í afplánun í fangelsinu á Hólmsheiði í lok september síðastliðins.
Sex konur voru í afplánun í fangelsinu á Hólmsheiði í lok september síðastliðins.
Auglýsing

Í lok sept­em­ber síð­ast­lið­ins voru 279 karlar og 38 konur á biðlista eftir afplánun í fang­elsi. Sam­an­lagt voru því 317 manns að bíða eftir að afplána dóma sem þeir höfðu verið dæmdir til að sitja af sér. 

Þetta kemur fram í svari Jóns Gunn­ars­sonar dóms­mála­ráð­herra við fyr­ir­spurn Þor­bjargar Sig­ríðar Gunn­laugs­dótt­ur, þing­manns Við­reisn­ar, um stöðu kvenna í fang­elsum lands­ins sem birt var á vef Alþingis í dag.

Þar segir að ell­efu konur hafi verið í afplánun í lok sept­em­ber­mán­að­ar. Sex þeirra voru í fang­els­inu á Hólms­heiði, þrjár á Sogni og tvær voru að afplána utan fang­elsa. 

Umboðs­maður Alþingis birti í sept­em­ber skýrslu þar sem stóð að mögu­lega væri til­efni til að taka ólíka stöðu karla og kvenna í fang­elsum lands­ins til sér­stakrar skoð­un­ar. Skýrslan var gerð í kjöl­far þess að umboðs­maður fór í óvænta eft­ir­lits­ferð á Kvía­bryggju þar sem 20 karlar afplána dóma. Var það mat hans að Kvía­bryggja væri eft­ir­sókn­ar­vert fang­elsi sam­an­borið við önn­ur, en um svo­kallað opið fang­elsi er að ræða. Eina opna úrræðið sem býðst konum er hins vegar Sogn, sem þykir ekki jafn eft­ir­sókn­ar­vert. Auk tveggja opinna fang­elsa eru tvö lokuð fang­elsi á Íslandi: áður­nefnt fang­elsi á Hólms­heiði og Litla-Hraun. 

Sjálf­boða­liða með jóga- og leik­fimi­tíma fyrir konur

Þor­björg spurði ráð­herra hvort hann tæki undir það mat umboðs­manns Alþingis að það hall­aði á konur innan fang­els­is­kerf­is­ins þegar kæmi að aðstöðu. Í svari Jóns segir að í skýrslu umboðs­manns segi að til­efni sé til að skoða aðstæður kven­fanga í íslenskum fang­elsum með heild­stæð­ari hætti en hefur verið gert þar sem meiri hluti fanga sé karl­kyns og fulln­ustu­kerfið því að miklu leyti mótað með það í huga. „Innan fulln­ustu­kerf­is­ins hefur verið reynt að koma til móts við aðstæður kvenna í fang­elsum og þá stað­reynd að konur hafi færri vist­un­ar­mögu­leika en karlar í fang­els­um. Það hefur til dæmis verið gert með því að konur hafa aðgang að stærra úti­vist­ar­svæði á Hólms­heiði en karlar og aukatóm­stunda­her­bergi þar og þá fá þær for­gang í vinnu á Hólms­heiði. Sjálf­boða­liðar hafa á tíma­bilum komið í fang­elsin með jóga- og leik­fimi­tíma fyrir kon­ur.“

Auglýsing
Þorbjörg spurði einnig til hvaða aðgerða ráð­herr­ann ætl­aði að grípa til að bæta stöðu kvenna í fang­elsum lands­ins. Í svari Jóns sagði að hann tæki undir það sem fram komi í skýrsl­unn­i um að til­efni sé til að skoða hvort halli á konur innan fang­els­is­kerf­is­ins og þá með hvaða hætti. „Til stendur að gera breyt­ingar á lögum um fulln­ustu refs­inga og verða þessi sjón­ar­mið þá tekin til sér­stakrar athug­unar sem og aðrar athuga­semdir frá umboðs­mann­i.“

Fjöldi þeirra sem bíða eftir afplánun hefur dreg­ist saman frá því sem áður var en Kjarn­inn greindi frá því snemma árs 2018 að þá hafi 560 manns beðið eftir því að kom­ast í afplán­un. Í þeirri umfjöllun kom einnig fram að tæpur helm­ingur þeirra sem sat inni í íslenskum fang­elsum á þeim tíma hefðu setið inni áður.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent