Samherji ætlar að aðskilja fjárfestingafélag sitt frá samstæðunni

Fjárfestingafélagið Kaldbakur verður sjálfstætt félag, að fullu aðskilið frá samstæðu Samherja, við árslok. Þar verða eignir Samherja sem ekki tengjast sjávarútvegi geymdar. Höfuðstöðvar félagsins verða í gamla Landsbankahúsinu á Akureyri.

Hermann Hermansson forstöðumaður rekstrar hjá Landsbankanum og Eiríkur S. Jóhannsson framkvæmdastjóri Kaldbaks og stjórnarformaður Samherja handsöluðu formlega kaup Kaldbaks á gamla Landsbankahúsinu á Akureyri í gær.
Hermann Hermansson forstöðumaður rekstrar hjá Landsbankanum og Eiríkur S. Jóhannsson framkvæmdastjóri Kaldbaks og stjórnarformaður Samherja handsöluðu formlega kaup Kaldbaks á gamla Landsbankahúsinu á Akureyri í gær.
Auglýsing

Fjár­fest­inga­fé­lagið Kald­bak­ur, sem haldið hefur utan um ýmsar fjár­fest­ing­ar­eignir Sam­herj­a­sam­stæð­unn­ar, verður að fullu aðskilið annarri starf­semi sjáv­ar­út­vegs­fé­lags­ins í lok þessa árs.

Frá þessu er greint í til­kynn­ingu á vef Sam­herja í dag, en þar segir sam­hliða frá því að Kald­bakur muni flytja starf­semi sína í gamla Lands­banka­húsið á Akur­eyri, sem félagið keypti nýlega á 750 millj­ónir króna.

„Sam­kvæmt skipt­ing­ar­á­ætlun er fullur aðskiln­aður Kald­baks við Sam­herja mið­aður við upp­gjör 30. júní 2022 og verður áætl­unin að fullu komin til fram­kvæmda í lok þessa árs. Kald­bakur verður sterkt félag með eign­ar­hluti í félögum bæði hér á Íslandi sem og erlend­is,“ er haft eftir Eiríki S. Jóhanns­syni, fram­kvæmda­stjóra Kald­baks og stjórn­ar­for­manni Sam­herja hf. í til­kynn­ing­unni.

Taka við eignum Sam­herja ótengdum sjáv­ar­út­vegi

Í til­kynn­ingu Sam­herja segir að frá því að Sam­herji var stofn­aður fyrir nærri fjöru­tíu árum síðan hafi félagið eign­ast hluti í ýmsum félögum sem í dag telj­ist ekki til kjarna­starf­semi Sam­herja, veið­um, fisk­eldi, vinnslu og sölu afurða. Ákveðið hafi verið að Kald­bakur taki yfir þessar eignir og verði sjálf­stætt starf­andi fjár­fest­inga­fé­lag „til að skerpa á áherslum í starf­sem­inni og auka gagn­sæ­i“.

Auglýsing

Kald­bakur heldur á umtals­verðum eignum Sam­herj­a­sam­stæð­unnar nú þeg­ar, meðal ann­ars um þriðj­ungs­hlut í Síld­ar­vinnsl­unni, 4,52 pró­senta hlut í Högum auk þess sem Kald­bakur á rúm­lega 45 pró­sent hlut í félag­inu Hrólfs­sker ehf., sem áður hét SVN eigna­fé­lag ehf.

Það félag er stærsti ein­staki eig­andi trygg­inga- og fjár­fest­inga­fé­lags­ins Sjó­vá, með 15,17 pró­sent hlut.

Ætla má, miðað við það sem fram kemur í til­kynn­ingu Sam­herja, að 32,79 pró­senta hlutur Sam­herja Hold­ing ehf. í Eim­skip muni einnig renna inn í Kald­bak, auk ýmissa ann­arra eigna sam­stæð­unnar sem tengj­ast ekki með beinum hætti veið­um, vinnslu, fisk­eldi og sölu afurða.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent