Píratar og Samfylkingin hafa samanlagt bætt við sig tíu prósentustigum á kjörtímabilinu

Allir stjórnarflokkarnir þrír hafa tapað fylgi frá því að síðast var kosið, í september 2021. Staðan er verst hjá Vinstri grænum, sem eru nú sjötti stærsti flokkur landsins samkvæmt nýrri könnun.

Kristrún Frostadóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, verður að öllum líkindum formaður Samfylkingarinnar í lok þessa mánaðar.
Kristrún Frostadóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, verður að öllum líkindum formaður Samfylkingarinnar í lok þessa mánaðar.
Auglýsing

Sjálf­stæð­is­flokkur og Píratar bæta við sig tveimur pró­sentu­stigum af fylgi hvor milli mán­aða sam­kvæmt nýrri könnun Mask­ínu. Fylgi Sjálf­stæð­is­flokks­ins mælist nú 22,8 pró­sent og er enn undir þeim 24,4 pró­sentum sem flokk­ur­inn fékk í síð­ustu kosn­ingum fyrir rúmu ári síð­an. Píratar mæl­ast hins vegar með 14,3 pró­sent fylgi og langt yfir þeim 8,6 pró­sentum sem flokk­ur­inn fékk upp úr kjör­köss­unum í fyrra.

Allir stjórn­ar­flokk­arnir þrír hafa tapað fylgi það sem af er kjör­tíma­bil­inu. Mest hefur kvarn­ast úr stuðn­ingi við flokk Katrínar Jak­obs­dóttur for­sæt­is­ráð­herra, Vinstri grænna, en ein­ungis 7,7 pró­sent aðspurðra í könnun Mask­ínu sögð­ust myndu kjósa flokk­inn í dag. Það er 4,9 pró­sentu­stigum minna en í síð­ustu kosn­ing­um. Ef kosið yrði í dag myndu fimm flokkar fá meira fylgi en Vinstri græn.

Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn hefur sömu­leiðis verið að dala og mælist nú með 15 pró­sent fylgi, eða 2,3 pró­sentu­stigum minna en þing­kosn­ing­unum í sept­em­ber 2021. 

Sam­an­lagt hafa stjórn­ar­flokk­arnir þrír því tapað 8,9 pró­sentu­stigum á rúmu ári og mæl­ast saman með 45,5 pró­sent fylgi.

Tveir bætt við sig sam­an­lagt tíu pró­sentu­stigum

Auk Pírata hefur Sam­fylk­ingin bætt miklu fylgi við sig það sem af er kjör­tíma­bili. Flokk­ur­inn fékk 9,9 pró­sent atkvæða í fyrra­haust en mælist nú með 14,4 pró­sent fylgi og þriðji stærsti flokk­ur­inn á þing­i. ­Saman nemur fylg­is­aukn­ing þess­ara tveggja flokka, sem eru nálægt hvorum öðrum í flestum stefnu­málum

Auglýsing
Viðreisn hefur líka tekið aðeins við sér und­an­farið og mælist með 9,5 pró­sent fylgi, eða 1,2 pró­sentu­stigi meira en flokk­ur­inn fékk í fyrra. 

Sam­an­lagt hafa þessir þrír flokkar bætt við sig 11,4 pró­sentu­stigum á rúmu einu ári og eru með 38,2 pró­sent stuðn­ing. 

Fylgi Flokks fólks­ins næstum helm­ing­ast

Sós­í­alista­flokkur Íslands mælist með 6,5 pró­sent fylgi og leiðir þá deild íslenskra stjórn­mála þar sem fylgið mælist oft í námunda við fimm pró­sent­in. Flokk­ur­inn hefur bætt við sig 2,4 pró­sentu­stigum á kjör­tíma­bil­inu og er sá eini slíkra flokka sem það hefur gert.

Flokkur fólks­ins náði í 8,8 pró­sent atkvæða í sept­em­ber í fyrra en fylgið hefur nán­ast helm­ing­ast síðan þá og mælist nú 4,6 pró­sent. Óvíst er hvort það myndi duga Flokki fólks­ins inn á þing, en hann mælist nú með minnst fylgi allra þeirra sem nefndir voru í könnun Mask­ín­u. 

Mið­flokkur Sig­mundar Dav­íðs Gunn­laugs­sonar siglir lygnan sjó með fimm pró­sent fylgi. Það er svipað og hann hefur verið að mæl­ast með allt kjör­tíma­bilið og 0,4 pró­sentu­stigum minna en hann fékk í sept­em­ber í fyrra. 

Könn­unin fór fram dag­ana 30. sept­em­ber til 17. októ­ber 2022 og voru 1.638 svar­endur sem tóku afstöðu til flokks.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent