Icelandair Group hagnaðist um 7,7 milljarða króna á þremur mánuðum

Eftir gríðarlegan taprekstur frá árinu 2018 hefur orðið viðsnúningur hjá Icelandair. Félagið hefur sýnt hagnað upp á 1,6 milljarða króna á fyrstu þremur mánuðum ársins og tvöfaldaði farþegafjölda sinn á þriðja ársfjórðungi milli ára.

Icelandair
Auglýsing

Hagn­aður Icelandair Group á þriðja árs­fjórð­ungi, sem hófst í byrjun júlí og lauk í lok sept­em­ber, var 7,7 millj­arðar króna. Það þýðir að félagið sýndi hagnað á fyrstu níu mán­uðum árs­ins upp á 1,6 millj­arð króna. 

í til­kynn­ingu frá félag­inu kemur fram að far­þega­tekjur hafi numið 54,1 millj­arði króna á síð­asta árs­fjórð­ungi og að þær hafi aldrei verið hærri. Félagið jók flug­fram­boð sitt í sem nemur 82 pró­sent af fram­boði árs­ins 2019 og sæta­nýt­ing þess var sú besta frá upp­hafi. Fjöldi far­þega, sem var 1,4 millj­ón­ir, var tvö­falt fleiri en á sama tíma í fyrra. 

Sjóð­staða Icelandair Group er nú sú besta frá stofnun félags­ins í lok þriðja árs­fjórð­ungs. 

Í til­­kynn­ingu segir Bogi Nils Boga­­son, for­­stjóri Icelandair Group, að bók­un­ar­staða félags­ins á fjórða árs­fjórð­ungi sé sterk en að það sé þó und­ir­búið undir mót­vind í vet­ur. „Rekstr­ar­um­hverfið verður áfram krefj­andi með hækk­andi vöxtum og kostn­aði sem lík­legt er að hafi áhrif á eft­ir­spurn. Við erum þó sann­færð um að það eru áfram mikil tæki­færi fyrir Ísland sem áfanga­stað. Icelandair byggir á sterkum grunni, með sterka lausa­fjár­stöðu sem og öfl­ugt leiða­kerfi og sveigj­an­leika sem gerir okkur kleift að hreyfa okkur hratt og aðlaga þjón­ustu okkar og starf­semi að aðstæðum hverju sinn­i.“

Töp­uðu næstum 80 millj­örðum á fjórum árum

Icelandair Group hefur tapað gríð­ar­legum fjár­munum á und­an­förnum árum. Félagið tap­aði 13,7 millj­­örðum króna í fyrra, 51 millj­­arði króna árið 2020, árið 2019 tap­aði það 7,8 millj­­­­arðar króna og á árinu 2018 var tapið um 6,8 millj­­­­arðar króna. Sam­tals nam tapið á þeim árum 79,4 millj­örðum króna. 

Icelandair Group fór í nokkrar hluta­fjár­­­­­aukn­ingar eftir að kór­ón­u­veiru­far­ald­­­­­ur­inn skall á. Félagið safn­aði alls 23 millj­­­­­­örðum króna í útboði sem fór fram í sept­­­­­­em­ber 2020, en það hefur átt í miklum rekstr­­­­­­ar­­­­­­vanda um ára­bil sem jókst veru­­­­­­lega þegar kór­ón­u­veiru­far­ald­­­­­­ur­inn reið yfir. 

Auglýsing
Icelandair Group gerði svo bind­andi sam­komu­lag við banda­ríska fjár­­­­­­­­­­­fest­ing­­­­­­ar­­­­­­sjóð­inn Bain Capi­tal um að hann keypti nýtt hlutafé í flug­­­­­­­­­­­fé­lag­inu í fyrra­sum­­­­­­­­­ar. Sam­­­­­­kvæmt sam­komu­lag­inu greiddi Bain Capi­tal 8,1 millj­­­­­­arð króna og eign­að­ist fyrir vikið 16,6 pró­­­­­­sent hlut í Icelandair Group. Bain Capi­tal á 14,96 pró­­­­­sent hlut í Icelandair Group og er lang stærsti eig­andi félags­­­­­ins. Aðrir stórir eig­endur eru íslenskir líf­eyr­is­­­­sjóð­­­­ir. Til við­­­bótar hafa verið sóttir nokkrir millj­­­arðar króna og alls nemur umfang þess fjár sem Icelandair Group hefur sótt sér 33 millj­­­örðum króna.

Þrátt fyrir mik­inn tap­­­­­rekstur hefur hluta­bréfa­verð í Icelandair Group rúm­­­­­lega tvö­­­­­fald­­­­­ast frá því að hluta­bréfa­út­­­­­­­­­boðið í sept­­­­­em­ber 2020 fór fram. 

Inn­­­leiddu hvata­­kerfi fyrir lyk­il­­fólk

Ekk­ert eitt fyr­ir­tæki fékk meiri fyr­ir­greiðslu úr rík­­­­is­­­­sjóði vegna kór­ón­u­veiru­far­ald­­­­ur­s­ins en Icelandair Group. Þá hefur Icelandair Group end­­­­ur­­­­samið, af mik­illi hörku, við helstu stétt­­­­ar­­­­fé­lög starfs­­­­manna sinna. Sagði meðal ann­­­­ars 95 pró­­­­sent flug­­­­freyja upp á meðan að á kjara­við­ræðum við þær stóð. Eftir að þær kol­­­­­felldu kjara­­­­­samn­ing var talað um að ráða fólk úr öðru stétt­­­­­ar­­­­­fé­lagi.

Þrátt fyrir mik­inn tap­­rekstur og rík­­is­­stuðn­­ing ákvað stjórn Icelandair Group að setja á fót hvata­­kerfi fyrir fram­­kvæmda­­stjórn og lyk­il­­starfs­­menn félags­­ins fyrr á þessu ári, og var til­­laga hennar þar um sam­­þykkt á aðal­­fundi. Mark­miðið með inn­­­­­­­­­leið­ing­u ­hvata­­­­­kerf­is­ins var  meðal ann­­­­­ars sagt vera að draga úr líkum á að hóp­­ur­inn yfir­­­­­­­­­gefi Icelandair Group með litlum fyr­ir­vara.

Auglýsing
Í kerf­inu felst að hóp­­­­­ur­inn mun geta fengið allt af 25 pró­­­­­sent af árs­­­­­launum sínum í bónus í formi kaup­réttar á hlutum í Icelandair Group. Fyr­ir­hugað er að gefa út 250 milljón hluti í ár vegna kerf­is­ins og alls 900 milljón hluti á þriggja ára tíma­bili. Miðað við mark­aðsvirði Icelandair Group í dag er virði þeirra hluta sem greiða á út sem kaupauka um tveir millj­­­­­arðar króna. Hægt verður að inn­­­­­­­­­leysa umrædda kaup­rétti að þremur árum liðn­­­­­­­­­um. 

Áður hafði Kjarn­inn greint frá því að laun og hlunn­indi for­­stjóra Icelandair Group hefðu hækkað um 48 pró­­sent milli 2020 og 2021. Í svari við fyr­ir­­spurn Kjarn­ans um ástæður þessa sagði að breyt­ing­una mætti „lang­­­­­­­mestu leyti rekja til þess að á árinu 2020 tók for­­­­­­­stjóri á sig 30 pró­­­­­­­sent launa­­­­­­­lækkun stærstan hluta árs­ins. Þess má geta í þessu sam­hengi að árs­­­­­­­reikn­ingur félags­­­­­­­ins er í USD en öll laun á Íslandi, þ.m.t. for­­­­­­­stjóra eru greidd í íslenskum krón­­­­­­­um. Með­­­­­­­al­­­­­­­gengi íslensku krón­unnar gagn­vart USD styrkt­ist á milli ára og ýkir það hækk­­­­­­­un­ina í árs­­­­­­­reikn­ingn­­­­­­­um.“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent