Foreldrar beðnir um að stinga upp á húsnæði sem hentar undir leikskólastarf

Skrifstofustjóri leikskólahluta skóla- og frístundasviðs óskar eftir uppástungum frá foreldrum barna á Grandaborg um húsnæði sem rúmar alla starfsemi leikskólans. Leikskólanum hefur verið lokað vegna raka- og mygluskemmda og skólpmengunar.

Leikskólanum Grandaborg við Boðagranda hefur verið lokað vegna myglu- og rakaskemmda og skólpmengunar. Skólinn starfar á þremur mismunandi stöðum í borginni en borgin hefur óskað eftir uppástungum frá foreldrum um hentungt leikskólahúsnæði.
Leikskólanum Grandaborg við Boðagranda hefur verið lokað vegna myglu- og rakaskemmda og skólpmengunar. Skólinn starfar á þremur mismunandi stöðum í borginni en borgin hefur óskað eftir uppástungum frá foreldrum um hentungt leikskólahúsnæði.
Auglýsing

Skóla- og frí­stunda­svið Reykja­vík­ur­borgar hefur beðið for­eldra barna á leik­skól­anum Granda­borg að stinga upp á hús­næði sem hentar fyrir alla starf­semi leik­skól­ans.

Granda­borg í vest­urbæ Reykja­víkur er einn 24 leik- og grunn­skóla borg­ar­innar þar sem greinst hefur mygla og einn fimm skóla sem þurft hefur að flytja starf­semi sína ann­að.

Leik­skól­anum var lokað í byrjun októ­ber en grunur um „slæma inni­vist“, eins og það er orðað í pósti til for­eldra og for­ráða­manna, kom fyrst upp sum­arið 2021. Þá var ráð­ist í end­ur­nýjun á hús­næði skól­ans. Þegar starfs­fólk sneri aftur eftir sum­ar­frí í ágúst síð­ast­liðnum fann hluti þeirra fyrir ein­kennum sem rekja má til myglu- og raka­skemmda. Eftir úttekt heil­brigð­is­eft­ir­lits borg­ar­innar og verk­fræði­stof­unnar Eflu kom í ljós að auk raka­skemmda fór skól­plögn í sundur undir nýrra húsi leik­skól­ans og mengun greind­ist í jarð­vegi.

Auglýsing

Granda­borg, auk Haga­skóla, hefur þurft að skipta starf­semi sinni í þrennt. Yngsta deild leik­skól­ans er með starf­semi í Ævin­týra­borg við Naut­hóls­veg og elsta deildin var flutt í Ævin­týra­borg á Egg­erts­götu. Þá eru tvær deildir leik­skól­ans með aðsetur á neðstu hæð í gamla Morg­un­blaðs­hús­inu í Kringl­unni þar sem leik­skól­inn Sunnuás hefur einnig starfað tíma­bund­ið.

„Allar ábend­ingar eru vel þegn­ar!“

Á upp­lýs­inga­fundi með for­eldrum í byrjun októ­ber kom fram að ekki liggur fyrir hversu langan tíma fram­kvæmdir við Granda­borg munu taka. Áætlað var að boða til ann­ars upp­lýs­inga­fundar um miðjan mán­uð­inn en svo hefur ekki verið gert.

Hvorki skóla­stjórn­endur né for­eldrar hafa fengið fund­ar­boð frá borg­inni en í pósti sem Ólafur Brynjar Bjarka­son, skrif­stofu­stjóri leik­skóla­hluta fag­skrif­stofu skóla- og frí­stunda­sviðs, sendi for­eldrum og for­ráða­mönnum á þriðju­dag er óskað eftir til­lögum frá for­eldrum um hús­næði sem gæti hentað fyrir alla starf­semi leik­skól­ans.

Í póst­inum segir að ýmsir mögu­leikar varð­andi hús­næði hafi verið skoð­að­ir, til að mynda JL-­hús­ið, hús­næði á Fiski­slóð og húsa­kostur KR en ekk­ert af þeim hafi komið til greina. Í póst­inum segir að borg­inni sé þröngur stakkur snið­inn þegar kemur að hús­næði sem upp­fyllir kröfur um leik­skóla­starf. For­eldrar eru því endi­lega beðnir um að láta vita ef þau hafa hug­myndir um hús­næði sem mögu­lega væri hægt að nota. „Allar ábend­ingar eru vel þegn­ar!“ segir í póst­in­um.

Áætlað er að funda með for­eldrum og for­ráða­mönnum á ný þegar frek­ari upp­lýs­ingar um húsa­kost eða fram­kvæmda­á­ætlun liggja fyr­ir.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent