Vin – Faglegt hugsjónastarf

Guðbjörg Sveinsdóttir geðhjúkrunarfræðingur skrifar um Vin, dagsetur fyrir geðraskanir, og áform borgarstjórnar að loka því í sparnaðarskyni. „Það er lágmarkskrafa að forsvarsmenn borgarinnar kynni sér málið af kostgæfni.“

Auglýsing

Fyrir jól urðu tals­verðar umræður um Vin, dag­setur fyrir geð­rask­an­ir, vegna áforma borg­ar­stjórnar Reykja­víkur um að loka því í sparn­að­ar­skyni. Margir tjáðu sig af mik­illi van­þekk­ingu, þar á meðal Einar Þor­steins­son for­seti borg­ar­stjórnar í Frétta­vakt­inni á sjón­varps­stöð­inni Hring­braut, þar sem hann sagði þessa starf­semi hafa byrjað sem sjálf­boða­liða­verk­efni af hálfu Rauða kross­ins og starf­semin í hús­inu sé þess eðlis að ekki þyrfti endi­lega fag­fólk til þess að sinna því.

Í ár eru 30 ár síðan Rauði kross Íslands opn­aði Vin sem hét þá Athvarf fyrir geð­fatl­aða. Var þetta fyrsta úrræðið sem opnað var gagn­gert til að draga úr félags­legri ein­angrun og stuðla að vald­efl­ingu þeirra sem stað­inn heim­sóttu og voru kall­aðir gestir á þeim tíma. Í kjöl­farið opn­uðu deildir Rauða kross­ins á við­kom­andi svæðum athvörfin Dvöl í Kópa­vogi, Læk í Hafn­ar­firði og Laut­ina á Akur­eyri, sem þessi sveit­ar­fé­lög hafa nú tekið yfir.

Því hefur verið haldið fram að Vin hafi verið starf­rækt af sjálf­boða­liðum og vissu­lega er Rauði kross­inn sjálf­boða­liða­hreyf­ing og í Vin starf­aði frá upp­hafi öfl­ugur sjálf­boða­liða­hópur sem var góð við­bót við starf­sem­ina. En í Vin voru ráðnir starfs­menn frá byrj­un, þrír í fyrstu og einum bætt við eftir nokkur ár. Þetta var fag­fólk á sviði geð­hjúkr­unar og/eða með reynslu af geð­með­ferð. Fljót­lega voru gest­irnir um og yfir 30 á dag og voru flestir þeirra mjög virkir í starf­sem­inni.

Auglýsing

Það má segja án þess að hallað sé á neinn að í Vin hafi verið unnið frum­kvöðla­starf með því að vinna sam­kvæmt nýjum straumum og við­horfum svo sem bata­stefnu og vald­efl­ingu fólks með geð­rænan vanda.

Það verður að halda til haga að þegar Vin var stofnað voru enn svo­kall­aðar lang­legu­deildir á Kleppi, þar sem fólk hafði búið jafn­vel ára­tugum sam­an. Með­ferðin ein­kennd­ist af for­ræð­is­hyggju og sam­fé­lags­geð­þjón­usta var lítil sem eng­in. Gestir og starfs­fólk Vinjar voru virk í að kynna sér það nýjasta í straumum og stefnum mál­efn­is­ins og með góðum stuðn­ingi Rauða kross­ins voru haldin mál­þing og vinnu­stofur í sam­vinnnu við ýmsa aðila, meðal ann­ars um sam­fé­lags­geð­þjón­ustu í sam­vinnu við Sains­bury Centre for Mental Health og um vinnu með raddir í sam­vinnu við Hear­ing Voices Org. Einnig var virkt sam­starf í til­efni alþjóð­legs geð­heil­brigð­is­dags og ekki má gleyma ferðum á fundi Rauða kross­ins um land allt þar sem starf­semin var kynnt og frætt um mál­efn­ið.

Allt þetta má lesa í 10 ára skýrslu Vinjar og vænt­an­lega á fleiri stöð­um. Ég nefni líka að Rauði kross Íslands var í sam­vinnu við Rauða kross­inn í Hvíta Rúss­landi (Belarus) um stofnun og rekstur á opnu húsi í Minsk að fyr­ir­mynd Vinjar og er sú starf­semi nú í lyk­il­hlut­verki varð­andi breyt­ingar og umbætur á sviði geð­þjón­ustu þar í landi.

En allt er breyt­ingum und­ir­orpið og það á við um starf­semi eins og Vinj­ar. Bæði hefur úrræðum fjölgað gíf­ur­lega miðað við fólks­fjölda, hug­mynda­fræði og þjón­usta þró­ast og Reykja­vík­ur­borg tekið við starf­sem­inni. Það er ekk­ert óeðli­legt að hugað sé að breyt­ing­um, spurt og spek­úlerað í nýt­ingu og fjár­munum og hvernig þeir nýt­ist sem best þeim sem á þurfa að halda. Það er í verka­hring vel­ferð­ar­sviðs borg­ar­innar og borg­ar­stjórn­ar.

Að ákveða að loka Vin er ekki eitt­hvað sem not­endur og starfs­menn eiga að heyra um í fjöl­miðl­um, það er gríð­ar­legt virð­ing­ar­leysi og skiln­ings­leysi á aðstæðum þeirra. Svo stóra ákvörðun þarf að und­ir­búa í langan tíma á fag­legan hátt og í góðri sátt og sam­vinnu við þau sem málið varð­ar. Það er lág­marks­krafa að for­svars­menn borg­ar­innar kynni sér málið af kost­gæfni.

Höf­undur er geð­hjúkr­un­ar­fræð­ingur og fyrrum for­stöðu­maður Vinj­ar.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiAðsendar greinar