Ríkissjóður greiðir upp 62 milljarða skuldir

Erlendar skuldir ríkissjóðs hafa lækkað hratt að undanförnu og nema nú 230 milljörðum króna.

Bjarni Benediktsson
Auglýsing

Rík­is­sjóður Íslands hefur í dag greitt upp skulda­bréf sem gefin voru út árið 2011 og voru á gjald­daga í dag. Eft­ir­stöðvar skulda­bréf­anna námu 503 millj­ónum Banda­ríkja­dala eða um 62 millj­örðum króna. Bréfin verða greidd af gjald­eyr­is­inn­stæðum rík­is­sjóðs í Seðla­banka Íslands, að því er segir í til­kynn­ingu frá fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­inu.

Útgáfan árið 2011 var fyrsta útgáfa rík­is­sjóðs á alþjóða­mark­aði eftir fjár­mála­hrun­ið. Heild­ar­nafn­verð útgáf­unnar nam á sínum tíma einum millj­arði Banda­ríkja­dala. Á síð­asta ári leysti rík­is­sjóður til sín um helm­ing af útistand­andi bréfum og voru upp­kaupin liður í lausa­fjár- og skulda­stýr­ingu rík­is­sjóðs. Skulda­bréfin voru gefin út til 5 ára og báru 4,875% fasta vexti sem sam­svar­aði 3,2% álagi á vexti á milli­banka­mark­aði.

„Í fjár­lögum árs­ins 2016 var gert ráð fyrir end­ur­fjár­mögnun láns­ins ef mark­aðs­að­stæður væru hag­stæð­ar. Rík­is­sjóður kann að skoða end­ur­fjár­mögnun síðar á árinu ef þörf verður á að styrkja gjald­eyr­is­forða Seðla­banka Íslands frekar, en erlend lán rík­is­sjóðs eru tekin til þess að fjár­magna gjald­eyr­is­forð­ann,“ segir í til­kynn­ingu frá fjár­mála- og efna­hgs­ráðu­neyt­inu.

Auglýsing

Heild­ar­skuldir rík­is­sjóðs nema eftir upp­greiðsl­una 1.252 millj­örðum króna og þar af nema erlendar skuldir 230 millj­örðum króna. Erlendar skuldir sam­an­standa af tveimur mark­aðs­út­gáf­um, annarri í Banda­ríkja­dölum frá árinu 2012 og nema eft­ir­stöðvar 1 millj­arði Banda­ríkja­dala, og hinni í evrum frá árinu 2014, alls að fjár­hæð 750 millj­ónir evra.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None