Einar K. Guðfinnsson, forseti Alþingis, hefur skipað Kjartan Bjarna Björgvinsson, héraðsdómara við Héraðsdóm Reykjavíkur, til að fara með rannsókn á aðkomu þýska bankans Hauck & Aufhäuser á hlut ríkisins í Búnaðarbankanum snemma árs 2003. Frá þessu er greint á RÚV. Kjartan Bjarni var um tíma aðstoðarmaður umboðsmanns Alþingis, og vann hjá embættinu frá árinu 2002 til 2009. Hann starfaði síðar hjá EFTA-dómstólnum. Kjartan Bjarni var skipaður í héraðsdómari í maí 2015.
í byrjun júní síðastliðins var samþykkt þingsályktunartillaga um að aðkoma þýska einkabankans Hauck & Aufhäuser að kaupum S-hópsins á 45,8 prósent hlut í Búnaðarbankanum í byrjun árs 2003 yrði rannsökuð af sérstakri rannsóknarnefnd sem mun hafa víðtækar heimildir til að kalla eftir upplýsingum. Rannsókn málsins á að vera lokið fyrir árslok og var tekið fram að einn maður myndi skipa rannsóknarnefndina.
Rannsóknin beinist sérstaklega að hlut þýska einkabankans Hauck & Aufhäuser að kaupum S-hópsins á Búnaðarbankanum í byrjun árs 2003. Rannsóknin verður framkvæmd eftir ábendingu Tryggva Gunnarssonar, umboðsmanns Alþingis, sem sendi stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd bréf í síðasta mánuði þar sem hann lagði til að skipuð yrði rannsóknarnefnd um málið. Þetta eigi að gera vegna þess að Tryggvi hafi nýjar upplýsingar sem byggja á ábendingum um hver raunveruleg þátttaka þýska bankans var. Samkvæmt heimildum Kjarnans mun rannsóknin meðal annars snúast um hvort Kaupþing, sem var sameinaður Búnaðarbankanum skömmu eftir að söluna á bankanum, hafi fjármagnað Hauck &Aufhäuser.
Til viðbótar er tilgangur tillögunnar að „skapa grundvöll fyrir nánari afmörkun á ályktun Alþingis frá 7. nóvember 2012, um rannsókn á einkavæðingu Fjárfestingarbanka atvinnulífsins hf., Landsbanka Íslands hf. og Búnaðarbanka Íslands hf., sbr. ákvæði laga um rannsóknarnefndir með síðari breytingum."
Kjarninn fjallaði ítarlega um málið í fréttaskýringu í lok maí.