Ríkisábyrgð á innstæðum óheimil

Geir H. Haarde kynnti neyðarlagasetninguna í sjónvarpsávarpi 6. október 2008. Samhliða var gefin út yfirlýsing um að íslenska ríkið ábyrgðist allar innlendar innstæður.
Geir H. Haarde kynnti neyðarlagasetninguna í sjónvarpsávarpi 6. október 2008. Samhliða var gefin út yfirlýsing um að íslenska ríkið ábyrgðist allar innlendar innstæður.
Auglýsing

Rík­is­á­byrgð á íslenskum inn­lán­um, sem byggir á yfir­lýs­ingu rík­is­stjórnar Íslands sem gefin var út í tengslum við neyð­ar­laga­setn­ing­una 6. októ­ber 2008, er óheim­il. Und­an­þága Eft­ir­lits­stofn­unar EFTA (ESA) vegna ábyrgð­ar­innar rann út fyrir 18 mán­uðum og hún þar með óheimil sam­kvæmt reglum Evr­ópska efna­hags­svæð­is­ins (EES), sem Ísland er aðili að. Alls eru inn­stæð­urnar sem ábyrgðin náði til meira en 1.000 millj­arðar króna. Frá þessu er greint í Við­skipta­blað­inu í dag. 

Þegar neyð­ar­lögin voru sett haustið 2008 voru inn­stæður gerðar að for­gangs­kröfum í slitabú þeirra banka sem féllu í kjöl­far­ið, og lögin náðu til. Sam­hliða gaf rík­is­stjórn Íslands út yfir­lýs­ingu um að allar inn­stæður á Íslandi væru tryggðar og á grund­velli þeirrar yfir­lýs­ingar voru inn­lendar inn­stæður færðar með handafli inn í nýja banka sem stofn­aðir voru á grunni hinna föllnu. Í lok síð­asta árs voru inn­stæður um 65 pró­sent af heild­ar­fjár­mögnun íslenska banka­kerf­is­ins og banka­kerfið þar með rekið á ábyrgð skatt­borgar­anna í ljósi fyrri yfir­lýs­ingar rík­is­stjórn­ar­innar um ábyrgð á öllum inn­lendum inn­stæð­um. Yfir­lýs­ingin hefur þó aldrei haft neitt laga­legt gildi, heldur byggði á því að stjórn­völd höfðu sýnt það í verki að þau myndu tryggja inn­stæður ef á það myndi reyna. 

Nú er hins vegar langt um liðið frá hruni og sá neyð­ar­réttur sem Íslend­ingar komust upp með að beita er vart til stað­ar, né þörf fyrir hann, miðað við aðstæður í dag. Ein af ástæðum þess að hin ólög­festa ábyrgð á inn­stæðum gekk upp alþjóð­lega var und­an­þága sem ESA veitti íslenskum stjórn­völdum til að haga málum með þessum hætti. Alls fjall­aði stofn­unin um málið í þremur ákvörð­unum sem birtar voru sum­arið 2012 og sagði að hún liti svo á að yfir­lýs­ingar stjórn­valda ­feli í sér laga­lega bind­and­i og óskil­yrta rík­is­á­byrgð, en einnig rík­is­að­stoð við íslenska við­skipta­banka. Þannig hafi íslenskir bankar hag af hinni ótak­mörk­uðu rík­is­á­byrgð, hún veiti þeim sam­keppn­is­for­skot og geri þeim kleift að krefj­ast lægri vaxta á inn­stæð­ur. Þrátt fyrir fjár­magns­höft séu íslenskir bankar, að minnsta kosti að ein­hverju leyti, í sam­keppni við erlenda banka. 

Auglýsing

Við­skipta­blaðið greinir frá því í dag að heim­ild sem ESA veitti fyrir ábyrgð­inni hafi verið bundin því að íslensk stjórn­völd hefðu þurft að draga hana til baka eins fljótt og auðið er. ESA úrskurð­aði síðan að rík­is­á­byrgðin væri heim­ild til árs­loka 2014. Í svari við fyr­ir­spurn Við­skipta­blaðs­ins segir ESA að umrædd heim­ild fyrir rík­is­á­byrgð á inn­stæðum hafi hvorki ver­ið fram­lengd né end­ur­nýjuð síð­an. Þá hafi íslensk stjórn­völd ekki óskað eftir fram­leng­ingu henn­ar. Í rík­is­reikn­ingi íslenska rík­is­ins fyrir árið 2015, og í grein­ar­gerð með fjár­laga­frum­varpi 2016,  kemur hins vegar fram að ríkið telji ábyrgð­ina vera í fullu gildi.

Í dag á rík­­ið Lands­­bank­ann nán­­ast að öllu leyti, allt hlutafé í Íslands­­­banka og 13 pró­­sent hlut í Arion banka. Ríkið er eig­andi að um 80 pró­­sent af allri grunn fjár­­­mála­­þjón­­ustu lands­ins. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None