Líkur á hjartaáfalli hjá íslenskum karlmönnum á aldrinum 45 til 54 ára jukust meira en hjá karlmönnum á aldrinum 55 til 64 á skattlausa árinu 1987 á Íslandi. Þetta sýnir ný rannsókn fræðimanna við Háskóla Íslands. Rannsóknin birtist nýverið í Journal of Health Economics, virtasta vísindatímariti heims á sviði heilsuhagfræði.
Markmið rannsóknarinnar var að kanna hvort aðstæður í efnahagslífi hefðu áhrif á líkur á hjartaáföllum og hvort skýringa væri að leita í tímabundinni aukningu á vinnuframboði, er fram kemur í tilkynningu frá Háskóla Íslands.
Skattlausa árið skoðað
Í rannsókninni var sjónum beint sérstaklega að árinu 1987, þegar skattkerfi Íslands tók breytingum og ákveðið var að breyta kerfinu yfir í staðgreiðsluskattkerfi og afnema tekjuskatt fyrir árið 1987. Það gerði það að verkum að vinnuframboð jókst og næga vinnu var að fá fyrir þá sem vildu vinna mikið. Því var kannað var hvort þessi tímabundna aukning á vinnuframboði hefði áhrif á tíðni hjartaáfalla.
Niðurstöður gefa til kynna að skýringa á auknum líkum á hjartaáföllum meðal karla á skattlausa árinu 1987 og ári síðar sé að leita í skammtíma aukningu vinnuframboðs meðal þeirra sem voru sjálfstætt starfandi. Þeir sem voru sjálfstætt starfandi juku meira við sig í vinnu en aðrir og sú staða á vinnumarkaði virðist skýra þá aukningu hjartaáfalla sem varð hjá körlum á skattlausa árinu. Möguleg skýring á þessu er að yngri mennirnir reyndust auka meira við sig í vinnu en eldri karlarnir sem virðist jafnframt vega upp á móti aldurstengdri áhættu hjartaáfalla.
Skattskrár bornar saman við hjartaáfallaskrár
Skattskrár voru bornar saman við skrár yfir hjartaáföll á Íslandi hjá fólki á aldrinum 45 til 74 ára, á tímabilinu 1982 til 1992. Í ljós kom að 24 prósenta aukning frá meðaltalslíkum á hjartaáföllum yfir rannsóknartímabilið varð árið 1987 hjá körlum 45-64 ára og 15,6 prósenta aukningu árið 1988.
„Það að vera við góða heilsu – og geta með góðu móti fórnað frítíma fyrir vinnutíma í afmarkaðan tíma – er hins vegar óháð því hvort einstaklingurinn er með ógreindan kransæðasjúkdóm. Þetta vekur því spurnignar um það hvort þeir sem yngri voru hafi síður vitað hvort þeir tilheyrðu áhættuhópi þegar kemur að hjartaáföllum. Ef til vill hafa þeir í minna mæli leitað læknis eða sinnt heilsueftirliti en þeir sem tilheyra eldri aldurshópnum,“ segir í tilkynningunni.
Höfundar greinarinnar eru Þórhildur Ólafsdóttir, doktorsnemi við Hagfræðideild, Tinna Laufey Ásgeirsdóttir, prófessor við Hagfræðideild, Birgir Hrafnkelsson, prófessor við Raunvísindadeild, og Guðmundur Þorgeirsson, prófessor við Læknadeild. Rannsóknin er hluti af doktorsrannsókn Þórhildar í heilsuhagfræði sem ber heitið „Áhrif skyndilegra breytinga í hagkerfi á heilsu og heilsutengda hegðun“.