Birna Þórarinsdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri Viðreisnar. Birna mun sinna daglegum rekstri flokksins og gegna lykilhlutverki í kosningabaráttunni sem er framundan, er fram kemur í tilkynningu frá flokknum.
Birna var síðast verkefnastjóri atvinnulífstengsla hjá Háskólanum í Reykjavík, en áður var hún meðal annars framkvæmdastýra Evrópustofu, upplýsingamiðstöðvar ESB á Íslandi, yfirmaður skrifstofu UNIFEM (nú UN Women) á vegum Sameinuðu þjóðanna í Serbíu og framkvæmdastýra landsnefndar UNIFEM á Íslandi. Hún hefur kennt alþjóða- og öryggismál við bæði Háskóla Íslands og háskólann á Bifröst. Hún hefur einnig verið formaður stjórnar Samtaka um kvennaathvarf og situr sem sérfræðingur í samráðshópi á vegum utanríkisráðuneytisins um framkvæmd ályktunar öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna nr. 1325 um konur, frið og öryggi.
Birna er með MBA frá Háskólanum í Reykjavík, M.A. í öryggismálafræði frá Georgetown University og B.A. gráðu í stjórnmálafræði frá Háskóla Íslands.
Hún hefur störf 1. ágúst næstkomandi.