Íslenska hugbúnaðarfyrirtækið Meniga hlaut hin virtu World Summit Award fyrir bestu tæknilausnina í flokki viðskipta og versluna á ráðstefnu samtakanna í Singapúr í byrjun júlí.
World Summit Award er alþjóðleg ráðstefna sem er haldin á vegum Sameinuðu þjóðanna. Markmið þeirra er að verðlauna fyrirtæki sem þykja skara fram úr í þróun á tæknilausnum, sem hafa jákvæð samfélagsleg áhrif og hjálpa fólki um allan heim. Yfir 400 tilefningar frá 86 löndum bárust fyrir verðlaunin í ár.
Georg Lúðvíksson, forstjóri og einn stofnenda Meniga, tók við verðlaununum í Singapúr þann 1. júlí síðastliðinn.
Tilkynnt var um það í lok síðasta árs að fyrirtækið myndi hljóta verðlaunin.
Meniga þróar og selur fjármála- og markaðslausnir og er í viðskiptum við yfir 25 fjármálastofnanir í 16 löndum. Fyrirtækið er með um 100 starfsmenn í Reykjavík, Stokkhólmi og London og hjálpar um 25 milljónum manna um allan heim nota lausnir Meniga til að skilja og skipuleggja fjármál sín. Á Íslandi eru um 50 þúsund notendur að lausnum Meniga, eða tæplega þriðjungur allra heimila. Notkun Meninga er ókeypis fyrir notendur.
Jóhann Pétur Malmquist, prófessor í tölvunarfræði við Háskóla Íslands er sérfræðingur hjá World Summit Award fyrir Ísland og velur verkefni frá Íslandi. Hann segir það mikla viðurkenningu fyrir íslenska frumkvöðlastarfsemi í hugbúnaðariðnaði að Meniga hljóti verðlaunin, enda var fyrirtækið að keppa við lausnir frá 178 löndum. "Minn draumur er að fleiri íslensk fyrirtæki nái svona langt og að við getum haldið áfram að skapa fleiri vellaunuð störf í hugbúnaðariðnaði á Íslandi. Það gleður mig mikið þegar nemendum mínum farnast vel. Það er sérstaklega verðmætt þegar íslenskt hugvit er notað til verðmætasköpunar og skilar erlendum tekjum sem er undirstaða bættra lífskjara á Íslandi.“
Kjarninn var tilnefndur World Summit Award verðlauna Sameinuðu þjóðanna í flokknum e-Media&news, eða í stafrænna miðla og frétta, árið 2014. Þá voru alls 454 verkefni tilnefnd í átta flokkum. Kjarninn var eitt af tveimur íslenskum fyrirtækjum sem hlaut tilnefningu. Hitt var Locatify, sem var tilnefnt í flokknum e-Tourism&Culture, eða stafrænnar ferðaþjónustu og menningar. Hvorki Kjarninn né Locatify hlaut hins vegar verðlaunin.
Tölvuleikur CCP, EVE Online, vann til verðlauna í samkeppninni árið 2013 þegar hann varð í fyrsta sæti í flokki afþreyingar og leikja. EVE Online og Meniga eru einu íslensku vörurnar sem hafa unnið til verðlaunanna.