Vigdís ósammála Eygló um átök við Sjálfstæðisflokkinn

Formaður fjárlaganefndar tekur ekki undir ummæli félagsmálaráðherra um „slagsmál“ við Sjálfstæðisflokkinn um framlög til velferðarmála. Þingflokksformaður Sjálfstæðisflokks segir að kosningaskjálfti sé kominn í ráðherra.

Vigdís Hauksdóttir segir samstarf Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks í fjárlaganefnd hafa verið farsælt.
Vigdís Hauksdóttir segir samstarf Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks í fjárlaganefnd hafa verið farsælt.
Auglýsing

Vig­dís Hauks­dótt­ir, for­maður fjár­laga­nefndar og þing­maður Fram­sókn­ar­flokks, kann­ast ekki við þau ummæli Eyglóar Harð­ar­dótt­ur, félags- og hús­næð­is­mála­ráð­herra og rit­ara flokks­ins, um „slags­mál“ við Sjálf­stæð­is­flokk­inn um fjár­fram­lög til vel­ferð­ar­mála. 

„Ég tala bara fyrir mig, en sam­starfið við flokk­inn í fjár­laga­nefnd hefur verið afar gott og aldrei borið neinn skugga á,“ segir Vig­dís í sam­tali við Kjarn­ann. „Ég kann­ast ekki við þessar yfir­lýs­ingar Eyglóar út frá mínu sjón­ar­horni, en ég veit auð­vitað ekki hvað ger­ist við rík­is­stjórn­ar­borð­ið.“ 

„Mikil átök“ við Sjálf­stæð­is­flokk­inn

Eygló sagði í fréttum RÚV í gær að hún hafi verið í slags­málum við sam­starfs­flokk­inn í rík­is­stjórn um fram­lög til vel­ferð­ar­mála. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn leggi meiri áherslu á að lækka skatta á þá efna­mestu. Við­ræður um breyt­ingar á hús­næð­is­kerf­inu og aukin fjár­fram­lög inn í vel­ferð­ar­kerfið hafi hingað til strandað á Sjálf­stæð­is­mönn­um. 

Auglýsing

„Það hafa verið mikil átök. Stundum jafn­vel slags­mál við sam­starfs­flokk­inn um fram­lög inn í vel­ferð­ar­kerf­ið,“ sagði Eygló. 

Far­sælt sam­starf í fjár­laga­nefnd

Vig­dís segir sam­starf sitt við Sjálf­stæð­is­flokk­inn aftur á móti hafa verið gott. 

„Það hefur verið mjög far­sælt sam­starf á milli mín og Guð­laugs Þórs og meiri­hluta fjár­laga­nefndar allt kjör­tíma­bil­ið,“ segir hún. „Við höfum verið mjög sam­stíga um for­gangs­röðun í mál­efnum rík­is­ins.“ Hún und­ir­strikar einnig að báðir flokkar í fjár­laga­nefnd hafi verið sam­mála þegar kemur að hús­næð­is­mál­un­um, að reka rík­is­sjóð með afgangi og minnka skuldir rík­is­ins. „Ef ríkið skuldar mikið og þarf að borga hátt hlut­fall í vexti þá skrúfast allt nið­ur. Þá er voð­inn vís og ekki hægt að setja fjár­magn í vel­ferð­ar­mál ef rík­is­sjóður er stór­skuld­ug­ur,“ segir hún. „En ég ítreka að ég veit ekki hvað ger­ist við rík­is­stjórn­ar­borð­ið.“ 

Ummæli Eyglóar „ansi bil­leg“

Guð­laugur Þór Þórð­ar­son, vara­for­maður fjár­laga­nefndar og þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, sagði síðar við RÚV að ummæli Eyglóar væru „ansi bil­leg“ og furðar sig á þeim. Þá sagði hann Eygló sjálfa hafa getað for­gangs­raðað öðru­vísi í sínum mála­flokk­um, til dæmis með Íbúða­lána­sjóð. 

„Kom­inn kosn­inga­skjálfti í suma“

Ragn­heiður Rík­harðs­dótt­ir, þing­flokks­for­maður Sjálf­stæð­is­flokks, segir á Face­book-­síðu sinni að ummæli Eyglóar end­ur­spegla að kom­inn sé „kosn­inga­skjálfti í sum­a“, eins og hún orðar það. 

Ragn­heiður segir að ótrú­legt hafi verið að hlusta á Eygló segj­ast hafa verið í slags­málum við Sjálf­stæð­is­flokk­inn allt kjör­tíma­bil­ið. „Við höfum unnið með Fram­sókn að mörgum mál­um, leitt þau lykta, báðir flokkar hafa lagt sitt af mörk­um, þurft að gefa eftir og fá sitt fram.“ Þá sé þessi taktík Eyglóar þekkt fyr­ir­bæri. „En mér hugn­ast hún ekki,“ segir Ragn­heið­ur. 

Eygló hnýtir í Bjarna

Eygló sagði jafn­framt að það hafi sést á síð­ustu dögum að menn í Sjálf­stæð­is­flokknum hafi verið að leggja aukna áherslu á vel­ferð­ar­málin og lagt aukna fjár­muni inn í heil­brigð­is­kerf­ið. „Það er oft betra seint en aldrei. Ég myndi nátt­úru­lega horfa til þess.“ 

Þar á Eygló að öllum lík­indum við við­tal við Bjarna Bene­dikts­son, fjár­mála­ráð­herra og for­mann Sjálf­stæð­is­flokks­ins, við Morg­un­blaðið þar sem hann sagði að flokk­ur­inn mundi for­gangs­raða stefnu­málum sínum á næsta kjör­tíma­bili í þágu vel­ferð­ar­mála og heil­brigð­is­þjón­ustu.  

Ekki náð­ist í Bjarna Bene­dikts­son við vinnslu frétt­ar­inn­ar. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None