Fólk verður að skilja að fasteignaverðið gæti lækkað

Fasteignaverð hefur hækkað hratt í Danmörku, og greinendur eru nú farnir að minna á hið augljósa; að fasteignaverðið gæti lækkað aftur.

Kaupmannahöfn
Auglýsing

Danir hafa upp­lifað mikla upp­sveiflu á fast­eigna­mark­aði á síð­ustu árum, en frá árinu 2006 og fram á árið 2009 lækk­aði verðið um 30 ­pró­sent. Skell­ur­inn sem kom í efna­hags­líf Dana – eins og flestra ann­arra ríkja – eftir hremm­ingar á alþjóð­legum fjár­mála­mörk­uðum haustið 2008, gerði stöð­una ­síðan enn verri og leiddi til vax­andi van­skila. 

Und­an­farin sjö ár hefur fast­eigna­verð­ið, ekki síst á Kaup­manna­hafn­ar­svæð­in­u, hækkað jafnt og þétt og er það nú komið yfir það sem hæst var árið 2006, að því er fram kemur í umfjöllun Bloomberg. Grein­andi hjá bank­anum Nykredit, Mira Lie Ni­el­sen, segir að fátt bendi til þess að fast­eigna­verðið sé að fara lækka, en hún segir að nauð­syn­legt sé að koma fólki í skiln­ing um það, að verðið get­i ­lækk­að.

Í Kaup­manna­höfn hefur fast­eigna­verðið hækkað um 9,4 pró­sent á einu ári, og segir Niel­sen að staðan í borg­inni sé nú þannig, að fáir íbúar í borg­inni, sem ekki séu þegar komnir inn á mark­að­inn og hafi þannig hagn­ast á mik­illi hækkun fast­eigna­verðs, geti keypt hefð­bundnar íbúðir á mark­aðn­um. „Þetta háa verð mið­svæðis er farið að hafa áhrif til minni umsvifa (damp­ing role) á mark­aðn­um,“ segir Niel­sen í við­tali við Bloomberg.

Auglýsing

Fasteignaverðið í Danmörku hefur hækkað mikið á undanförnum árum.

Nykredit er með um 40 pró­sent mark­aðs­hlut­deild á fast­eigna­mark­aði í Dan­mörku, og hafa grein­endur bank­ans bent á að hættu­merki ­séu á fast­eigna­mark­aði, þar sem vextir séu óvenju­lágir í augna­blik­inu, eða al­veg við núllið. Þetta geti leitt til þess að fjöldi fólks sem geti keypt íbúð núna, gæti lent í vanda ef vextir myndu hækka á nýjan leik.

Reglu­breyt­ingar sem miða að því að koma í veg fyr­ir­ ó­jafn­vægi á fast­eigna­mark­aði hafa verið inn­leiddar í danska fjár­mála­kerf­ið, bæði með lögum og breyt­ingum á skil­málum sem bankar hafa sett fyrir lán­um. Þær miða að því að koma í veg fyrir að fólk geti fengið lán til að kaupa íbúð, sem ­síðan lendir fljótt í van­skil­um. Slíkt gerð­ist á árunum 2004 til 2007 í D­an­mörku, eins og víða ann­ars stað­ar. Þá var mögu­legt að fá 100 pró­sent fast­eigna­lán, eins og föllnu bank­arnir gerðu hér á landi, en hámarks­lán í D­an­mörku er nú 95 pró­sent af kaup­verði fyrstu eign­ar.

Hér á landi hefur þróun fast­eigna­verðs verið með svip­uð­u­m hætti og í Dan­mörku. Fast­eigna­mark­að­ur­inn á höf­uð­borg­ar­svæð­inu hefur ein­kenn­st af miklum verð­hækk­unum á und­an­förnum árum, eftir mik­inn skell í aðdrag­anda og kjöl­far hruns­ins fyrir tæpum átta árum. Á und­an­förnum fjórum árum hefur verð­ið hækkað um 30 pró­sent að raun­virði, og mæld­ist hækk­unin í júní síð­ast­liðnum 2,2 ­pró­sent, sem er mesta hækkun á einum mán­uði frá því fyrir hrun­ið.

Flestar spár gera ráð fyrir áfram­hald­andi hækk­un fast­eigna­verðs, ekki síst vegna þess að of lítið fram­boð er af eign­um, einkum litlum og með­al­stórum íbúð­um, miðað við mikla eft­ir­spurn.  Auk þess hefur mik­ill vöxtur í ferða­þjón­ustu á und­an­förnum árum ýtt undir hækkun fast­eigna­verð, þar sem þús­undir íbúða hafa verið nýttar til útleigu fyrir ferða­menn. 



Eins og Kjarn­inn greindi frá 6. júlí þá hafa íbúðir aldrei selst hraðar en á fyrri hluta þessa árs. 
Íbúðir eru að jafn­­aði tals­vert skemur í sölu nú en á und­an­­förnum tíu árum. Ein­ungis tekur um sjö vikur (1,87 mán­uð) að selja íbúð­­ar­hús­næð­i miðað við veltu á fast­­eigna­­mark­aði í apr­íl.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent
None