Ræddu um að koma í veg fyrir útgáfu Fréttablaðsins

365
Auglýsing

Lyk­il­starfs­menn Frétta­blaðs­ins ræddu mögu­leik­ann á því að leggja niður störf síð­ast­lið­inn föstu­dag og koma þannig í veg fyrir að blaðið kæmi út dag­inn eft­ir. Ástæðan var megn óánægja með þá ákvörðun Krist­ínar Þor­steins­dótt­ur, aðal­rit­stjóra 365 miðla, að segja yfir­manni ljós­mynda­deildar 365, Pjetri Sig­urðs­syni, upp störf­um. Frá þessu er greint í Morg­un­blað­inu í dag

Pjetur hafði kvartað undan Krist­ínu við fyrr­ver­andi mannauðs­stjóra fyr­ir­tæk­is­ins vegna meints ein­elt­is. Mannauðs­stjór­inn, Unnur María Birg­is­dótt­ir, setti af stað form­lega athugun á ásök­unum Pjet­urs en þegar Kristín komst að því að slík athugun stæði yfir var hún stöðvuð af yfir­stjórn 365 og Pjetur sendur í leyfi. Unnur María hætti störfum í byrjun júní, eftir að hafa starfað hjá fyr­ir­tæk­inu í hálft ár. 

Í síð­ustu viku var Pjetri sagt upp störfum og starfs­menn á rit­stjórn 365 síðan boð­aðir á fund á föstu­dag með Krist­ínu þar sem hún fór yfir málið frá sínum bæj­ar­dyr­um. Sam­kvæmt heim­ildum Kjarn­ans hélt hún því þar fram að ástæðan fyrir sam­skiptarörðu­leik­unum við Pjetur væru hans meg­in, ekki hennar og ásak­aði hann um að vera í her­ferð gegn sér. Þessi mál­flutn­ingur fór afar illa í starfs­menn, sér­stak­lega þar sem hann fékk ekki tæki­færi til að segja sína hlið á mál­inu. Var í kjöl­farið rætt um að leggja niður störf og koma í veg fyrir að Frétta­blað­ið, sem er stærsta dag­blað lands­ins, kæmi út á laug­ar­dag. 

Auglýsing

Send­andi kall­aður á hita­fund með eig­endum

Þess í stað ákváðu starfs­menn­irnir að senda frá sér yfir­lýs­ingu vegna atburð­anna. Hún var send út á þriðju­dag og sam­kvæmt upp­lýs­ingum Kjarn­ans stóðu nær allir starfs­menn Vísis og Frétta­blaðs­ins sem ekki hafa fjöl­skyldu­tengsl við aðal­rit­stjór­ann og náð­ist í, að yfir­lýs­ing­unni. Í yfir­lýs­ing­unni er upp­sögn Pjet­urs sögð óverð­skuld­uð. Þar eru einnig hörmuð „óá­­­sætt­an­­leg vinn­u­brögð aðal­­­­­rit­­­stjóra og yfir­­­­­stjórnar fyr­ir­tæk­is­ins í aðdrag­anda upp­­­­­sagnar Pjet­­­urs og við kynn­ingu á henni til sam­­­starfs­­­manna hans.“ Yfir­lýs­ingin var send til allra fjöl­miðla, Ingi­bjargar Pálma­dóttur stjórn­­­ar­­for­­manns og aðal­eig­anda 365, Sæv­ars Freys Þrá­ins­sonar for­­stjóra 365 og Krist­ín­ar, aðal­­­rit­­stjóra fyr­ir­tæk­is­ins.

Hún var send út af net­fangi Jóns Hákons Hall­dórs­son­ar, blaða­manns á Frétta­blað­inu. Jón Hákon hefur starfað lengi hjá 365, með hlé­um. Hann var kall­aður inn á hita­fund með helstu eig­endum 365 í gær vegna máls­ins. Sam­kvæmt heim­ildum Kjarn­ans voru bæði Ingi­björg Pálma­dóttir og eig­in­maður henn­ar, Jón Ásgeir Jóhann­es­son, á þeim fundi. Þar lýstu þau mik­illi óánægju með yfir­lýs­ing­una. Ekk­ert hefur náðst í, eða heyrst frá, Sæv­ari Frey, for­stjóra 365, frá því að yfir­stand­andi atburða­rás hófst.

Ingi­björg sendi síðan starfs­fólki rit­stjórnar 365 miðla póst í gær. Þar sagði hún að fag­­legur ágrein­ingur milli yfir­­­manns og und­ir­­manns hafi valdið upp­­­sögn Pjet­­urs. Eig­endur og yfir­­­stjórn 365 hafi aðeins eitt að mark­miði, að standa að vand­aðri fjöl­miðlun og afþr­ey­ingu og reka gott fyr­ir­tæki. Mik­il­vægt sé að eig­end­­ur, stjórn­­endur og starfs­­menn tali saman sem ein liðs­heild. „Þá vil ég að lokum taka fram að 365 er fjöl­­skyld­u­­fyr­ir­tæki. Von mín er að við stöndum saman sem ein fjöl­­skylda.“ Hægt er að lesa póst­inn í heild sinni hér.

Kjarn­inn greindi frá því í gær að Fanney Birna Jóns­dótt­ir, aðstoð­ar­rit­stjóri Frétta­blaðs­ins, hafi sagt upp störf­um. Hún vildi ekki tjá sig um málið þegar eftir því var leitað en í Morg­un­blað­inu í dag er sagt að hún hafi vitað af, og stutt, yfir­lýs­ingu starfs­manna Vísis og Frétta­blaðs­ins. Aðstoð­ar­rit­stjóri blaðs­ins ber í raun ábyrgð á dag­legum rekstri Frétta­blaðs­ins, þar sem aðal­rit­stjóri frétta­stofu 365, Kristín Þor­steins­dótt­ir, stýrir öllum ein­ingum frétta­stof­un­ar. Þar falla einnig undir Vísir og frétta­stofa Stöðvar 2, en starfs­menn hennar tóku ekki þátt í að senda út yfir­lýs­ing­una vegna upp­sagnar Pjet­ur­s. 

Sím­inn seg­ist ekki vera að kaupa

Dag­inn áður en að yfir­lýs­ingin var send út birti Eiríkur Jóns­son frétt á heima­síðu sinni þar sem hann hélt því fram að Sím­inn væri að kaupa ljós­vaka­miðla 365. Hann sagði einnig að búið væri að finna kaup­endur að Frétta­blað­inu og Vísi. Sím­inn sendi frá sér frétta­til­kynn­ingu vegna þessa þar sem því var neitað að félagið hefði keypt ljós­vaka­miðla 365 og sagt að við­ræður um slíkt stæðu ekki yfir.

Sam­kvæmt heim­ildum Kjarn­ans voru hugs­an­leg kaup skoðuð laus­lega innan Sím­ans fyrr á þessu ári en þá ákveðið að fylgja ekki þeirri skoðun eftir með kaup­um. Það er hins vegar eitt verst geymda leynd­ar­mál íslensks við­skipta­lífs að 365 er til sölu og að helstu eig­endur þess hafa reynt að selja fyr­ir­tækið víða á und­an­förnum árum. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None