Erfið staða stærstu sveitarfélaganna

Skuldastaða sveitarfélaga er að batna, en grunnreksturinn er að þyngjast.

7DM_2269_raw_0587.JPG
Auglýsing

Rekstur sveit­ar­fé­laga hefur orðið erf­ið­ari milli ára, ekki síst vegna hækk­andi launa­kostn­aðar og minnk­andi fram­legðar af grunn­rekstri. Þetta kemur fram í nýrri grein­ingu grein­ing­ar­deildar Arion banka. 

Í gær birti hún fimmta árið í röð sam­an­tekt sem snýr að afkomu og fjár­hags­stöðu sveit­ar­fé­laga lands­ins. Úrtakið nær yfir 27 stærstu sveit­ar­fé­lög­in, sem öll eiga það sam­eig­in­legt að telja 1.500 íbúa eða fleiri, og er sam­an­lagður íbúa­fjöldi þeirra rúm­lega 308.000 eða um 93 pró­sent lands­manna. Í grein­ing­unni er miðað við A- og B-hluta sveit­ar­fé­lag­anna, þ.e. sveit­ar­sjóð ásamt fyr­ir­tækj­um, stofn­unum og öðrum rekstr­ar­ein­ingum sveit­ar­fé­lags­ins.

Þó svo að fjár­hags­staða sveit­ar­fé­lag­anna sé mis­mun­andi eins og þau eru mörg þá má almennt segja að rekst­ur­inn hafi harðnað á milli ára þrátt fyrir síbatn­andi skulda­stöðu. Launa­hækk­anir í kjöl­far nýrra kjara­samn­inga hefur reynst sveit­ar­fé­lög­unum erf­iður biti að kyngja þar sem útsvars­hlut­fall er í mörgum til­fellum í lög­bundnu hámarki og geta til að auka tekjur tak­mark­að­ar. Þá virð­ist einnig sem fjár­fest­ingar þeirra þurfi að sitja á hak­anum meðan tek­ist er á við önnur við­fangs­efni í rekstr­in­um.

Auglýsing

Launakostnaður, hlutfallslega, fór hækkandi.

Sam­kvæmt grein­ing­unni lækk­aði EBITDA (rekstr­ar­hagn­aður fyrir afskriftir og fjár­magns­kostn­að) fram­legð sveit­ar­fé­lag­anna í fyrsta sinn frá því að við byrj­uðum að birta sam­an­tekt­ina. „Þessi þróun hélt áfram á síð­asta ári og lækk­aði EBITDA sem hlut­fall af rekstr­ar­tekjum um 4,3 pró­sentu­stig að vegnu með­al­tali (þ.e. að teknu til­liti til stærðar þeirra) og 1,8 pró­sentu­stig að hreinu með­al­tali. EBITDA fram­legð er því komin undir 15% að vegnu með­al­tali, eftir að hafa farið hæst í 23% árið 2013, og mæl­ast 19 af 27 sveit­ar­fé­lögum með fram­legð undir 15%. Tekjur juk­ust nokkuð á nýliðnu rekstr­ar­ári og var raun­vöxtur tekna að með­al­tali 6,3% eða um 4,3 pró­sentu­stiga aukn­ing á milli ára. Hins vegar juk­ust gjöld ívið meira eða um 11,4% að raun­gildi. Síð­ast­liðin tvö ár hafa því rekstr­ar­tekjur auk­ist um 8,5% að raun­gildi á meðan að gjöld hafa auk­ist um 22,7%. Líkt og við tókum fram í mark­aðs­punkti fyrir rúmu ári síðan þá voru sveit­ar­fé­lögin sett í nokkuð erf­iða stöðu í kjöl­far kjara­samn­inga, flest hver með útsvar í botni og með tak­mark­aða mögu­leika til að bregð­ast við þessum kostn­að­ar­þrýst­ingi, og er það að koma niður á EBITDA fram­legð­inn­i,“ segir í grein­ingu Arion banka.

Framlegðin minnkar.

Heilt yfir skil­uðu sveit­ar­fé­lögin hagn­aði á árinu að hreinu með­al­tali en þegar horft er til veg­ins með­al­tals var um tap­rekstur að ræða. Hækk­anir á líf­eyr­is­skuld­bind­ingum Reykja­vík­ur­borgar vega þar þungt en um fimm millj­arðar af halla­rekstur var á árinu. Af þeim 27 sveit­ar­fé­lögum í okkar úttekt skil­uðu 10 tapi á rekstr­ar­ár­inu sam­an­borið við 4 árið áður. Rétt er þó að hafa í huga að það er vita­skuld ekki mark­mið sveit­ar­fé­laga að hámarka hagnað en hagn­aður fyrir afskriftir (EBIT­DA) þarf þó að vera nægi­lega hár svo hægt sé að mæta fjár­fest­ingum og fjár­magns­kostn­að­i. 

Það vekur „nokkra athygl­i“, segir í grein­ing­unni, hvað fjár­fest­ing dregst mikið saman á milli ára. „Fyrir tveimur árum veltum því fyrir okkur hvort aukin efna­hags­um­svif myndu ekki kynda undir fjár­fest­ingu meðal sveit­ar­fé­lag­anna og sú varð raunin árið 2014 þar sem við sáum meðal fjár­fest­ingu á íbúa vaxa um 20,5% milli ára. Sú þróun sner­ist hins vegar við á árinu 2015 og stöðv­að­ist vöxtur fjár­fest­ingar algjör­lega þar sem 16 af 27 sveit­ar­fé­lögum drógu fjár­fest­ingar saman á milli ára,“ segir í grein­ing­unn­i. 

Það má fast­lega reikna með því að launa­hækk­anir und­an­far­inna ára hafi átt sinn þátt í þess­ari þróun síð­ast­liðið ár, en laun og launa­tengd gjöld á hvern íbúa juk­ust að með­al­tali um 17,0 pró­sent á milli ára og hafa auk­ist um 30,1 pró­sent á föstu verð­lagi síð­ast­liðin tvö ár.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None