Íslandsvaktin grímulaus áróður

Sérstök vefsíða, Iceland Watch, talar máli aflandskrónueigenda, sem einkum eru bandarískir sjóðir sem saka stjórnvöld um eignaupptöku og ólöglegar aðgerðir í tengslum við afnám fjármagnshafta.

wall-street-sign.jpeg
Auglýsing

Á sér­stökum vef sem frels­is­stofnun í Banda­ríkj­unum (The Li­berty Founda­tion) heldur úti er minnst á að Alþingi komi saman í dag, 15. ágúst, og sag­t að Ísland standi nú á tíma­mót­um, þar sem það velur að fara í átt að meira efna­hags­legu frelsi eða höftum og minna efna­hags­legu frelsi.

Á vefn­um, sem ber heitið Íslands­vakt (Iceland Watch) er ­sér­stak­lega tekið fram að nú standi yfir vinna við að afnema fjár­magns­höft og beinir vefur spjótum sínum að hags­munum aflandskrónu­eig­enda. Er ­sér­stak­lega vikið að stöðu aflandskrónu­eig­enda í þessu sam­hengi, en eins og ­kunn­ugt er tóku stórir eig­endur aflandskrónu­eig­enda, af um 320 millj­arða heild­ar­stærð, ekki þátt í aflandskrón­u­út­boði Seðla­banka Íslands þar sem þeir ­sættu sig ekki við skil­mála stjórn­valda og seðla­bank­ans. Að þessu leyti er sú hags­muna­gæsla sem talað er fyrir alveg grímu­laus og ekki reynt að fela það með­ ­nemum hætti fyrir hverju er talað á vefn­um.

Auglýsing


Ekki þátt­taka

Seðla­­banki Ís­lands hélt tvö aflandskrón­u­út­­­boð í júní þar sem eig­endum aflandskróna bauðst að skipta þeim yfir í evrur gegn afslætti. Fjöldi banda­rískra sjóða sem eiga slíkar ákvað að taka ekki þátt í útboð­unum tveim­­ur, en í því síð­­­ara bauðst bank­inn til að kaupa krónur þeirra fyrir 190 krónur á hverja evru. Fjár­­­hæð sam­­­þykktra til­­­­­boða í báðum útboð­unum var 83 millj­­­arðar króna og hækk­­­aði um fimm millj­­­arða króna milli útboða. Alls voru 188 millj­­­arðar króna boðnir í útboð­inu en heild­­­ar­um­­fang aflandskrón­u­vand­ans var fyrir það um 319 millj­­­arðar króna.

Sjóðir eigna­stýr­ing­ar­fyr­ir­tæk­is­ins Eaton Vance Mana­gement voru á meðal þeirra sem tóku ekki þátt í útboð­un­um og það sama á við um sjóð­inn Autonomy Capi­tal LP, en ríf­lega 30 pró­sent af aflandskrónu­hengj­unni var í eigu þess­ara sjóða.

Kaupa í félög­um hér

Sjóðir í stýr­ing­u Eaton Vance hafa á síð­­­ustu vikum og mán­uðum keypt hluta­bréf í mörgum af þekkt­­ustu skráðu fyr­ir­tækjum Íslands. Nú er svo komið að tveir sjóðir á vegum þess - Global Macro Port­­folio og Global Macro Absolute Ret­urn A­dvantage - eru sam­an­lagt komnir í hóp tíu stærstu hlut­hafa Eim­­skipa og Reita fast­­eigna­­fé­lags. Þá er annar sjóð­­ur­inn einnig kom­inn á lista yfir­ 20 stærstu hlut­hafa Haga, stærsta smá­­sölu­­fyr­ir­tækis á Íslandi.  Þá hafa sjóð­irnir eign­­ast 1,7 pró­­sent hlut í HB Granda, eina skráða sjá­v­­­ar­út­­­vegs­­fyr­ir­tæki lands­ins. Frá þessu er greint í DV í síð­ustu viku. Þar segir að sam­an­lagt virði eign­­ar­hluta sjóð­anna í þessum fjórum fyr­ir­tækjum sé vel á fimmta millj­­arð króna.

Laga­leg­ar ­deilur

Sjóð­irn­ir á­kváðu strax 23. maí, þegar laga­frum­varp um losun á fjár­magns­höftum var kynnt, að vísa því til ESA, eft­ir­lits­stofn­unar EFTA, þar sem þeir töldu aðgerð­irn­ar ­fela í sér eigna­upp­töku og brot gegnum ákvæðum laga um jafn­ræði. Sú afstaða lá raunar fyrir í umsögn sem fór fyrir Alþing­i. 

Þrátt fyrir mót­mæli þeirra, varð frum­varpið að lögum og hafa stjórn­völd, ráð­gjafar og sér­fræð­ingar Seðla­banka Ís­lands unnið hörðum höndum að því að stíga síð­asta skref­ið. 

Sjóð­irn­ir ­segj­ast ætla að láta reyna á rétt sinn, og sést vel á skrif­unum á Ís­lands­vakt­inni að hags­mun­irnir eru metnir mikl­ir. Nú sé umheim­ur­inn að ­fylgj­ast með því hvernig þróun mála verður á Íslandi, og að þessi aðgerð – af­nám hafta – muni segja til um hvort stjórn­mála­menn á Íslandi ætli sér að feta ­leið „frels­is“ í við­skiptum eða marka braut­ina til fram­tíðar með aðgerðum sem ­geti dregið úr erlendri fjár­fest­ingu og hag­vexti.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None