57 einstaklingar sem eru í þeim gögnum um fjármuni Íslendinga í erlendum skattaskjólum sem ríkið keypti í fyrra verða ekki rannsakaðir frekar vegna þess að þeir hafa annað hvort flutt úr landi eða eru látnir. Þetta kemur fram í svari Bjarna Benediktssonar, fjármála- og efnahagsráðherra, við fyrirspurn Svandísar Svavarsdóttur, þingmanns Vinstri grænna, um hver árangur af kaupum á gögnunum hafi verið.
Fjölmargir þeirra Íslendinga sem opinberaðir voru í Panamaskjölunum svokölluðu eiga lögheimili erlendis. Þeir eiga það þó allir sameiginlegt að hafa efnast mjög á viðskiptum á Íslandi og flutt peninga úr íslensku efnahagskerfi yfir í erlend eignarhaldsfélög.
Keyptu gögn sem síðar voru birt í fjölmiðlum
Umrædd gögn voru boðin til sölu í fyrra og loks keypt í fyrrasumar. Gögnin komu frá lögmannsstofunni Mossack Fonseca & Co í Panama og eru því, að minnsta kosti að hluta, sömu gögn og fjölmargir fjölmiðlar víða um heim birtu fréttir úr í apríl síðastliðnum. Þegar íslenska ríkið keypti gögnin kom fram að þar væru upplýsingar um 400 Íslendinga sem tengdust 585 félögum. Í Panamaskjölunum sem lekið var til alþjóðlegu blaðmannasamtakanna ICIJ voru hins vegar upplýsingar um tæplega 600 Íslendinga og um 800 félög í þeirra eigu. Því voru þau gögn ítarlegri en gögnin sem íslensk yfirvöld keyptu í fyrra á 38,2 milljónir króna.
Á meðal þeirra Íslendinga sem koma fram í gögnunum, og eru með tengsl við aflandsfélög, eru Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, fyrrverandi forsætisráðherra, Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, Ólöf Nordal innanríkisráðherra og nokkrir stjórnmálamenn af sveitarstjórnarstíginu. Þar var einnig að finna stjórnendur úr lífeyrissjóðakerfinu og fjölmarga einstaklinga sem hafa verið áberandi í íslensku viðskiptalífi á undanförnum árum. Þar á meðal voru Jón Ásgeir Jóhannesson, Ingibjörg Pálmadóttir, Lýður og Ágúst Guðmundssynir, Finnur Ingólfsson, Sigurður Bollason, Hannes Smárason, Björgólfur Thor Björgólfsson ofl.
Hluti þessa hóps er skráður með lögheimili erlendis.
30 mál í rannsókn
Þegar gögnin sem ríkissjóður keypti voru skoðuð kom í ljós að á fjórða tug þeirra einstaklinga sem fjallað er um í þeim hefur áður sætt rannsókn hjá skattrannsóknarstjóra (SRS) vegna ætlaðra skattalagabrota. Eftir greiningarvinnu SRS var ákveðið að 30 mál myndu sæta áframhaldandi meðferð þar sem fyrir þá rökstuddur grunur um undanskot tekna. Rannsókn á þeim stendur enn yfir. Í svari Bjarna segir enn fremur: „Athugun RSK (Ríkisskattstjóri) hefur leitt í ljós að skattskil 178 einstaklinga sem koma fram í gögnunum hafa á þessu stigi gefið tilefni til þess að stofnuð hafa verið mál á þessa einstaklinga hjá embættinu. Þá liggur fyrir að 57 einstaklingar sæta ekki frekari skoðun þar sem þeir eru ýmist látnir eða fluttir úr landi. Enn fremur eru 19 lögaðilar í gögnunum sem þarf að skoða betur auk 83 einstaklinga sem enn þá eru til athugunar. Óljóst er á þessari stundu hversu mörgum málum kann að verða vísað aftur til SRS að lokinni athugun RSK.“