Nýr aðstoðarritstjóri Fréttablaðsins ráðinn

365 miðlar
Auglýsing

Andri Ólafs­son hefur verið ráð­inn aðstoð­ar­rit­stjóri Frétta­blaðs­ins. Frá þessu er greint í DV í dag. Hann tekur við starf­inu af Fann­eyju Birnu Jóns­dóttur sem sagði því lausu í sumar eftir að gegnt því í eitt ár. Andri hefur starfað lengi hjá 365 og var í fyrra­vetur rit­stjóri Íslands í dag. Sá þáttur hefur nú verið lagður niður eftir að hafa verið á dag­skrá Stöðvar 2 um margra ára skeið. Þess í stað verða fréttir Stöðvar 2 lengdar og nýtt umhverfi þeirra kynnt á næstu dög­um. 

Mikil ólga hefur verið innan 365 und­an­farnar vik­ur. Ástæðan er óánægja með störf Krist­ínar Þor­­steins­dótt­­ur, aðal­­­rit­­stjóra frétta­­stofu 365, og yfir­­­stjórnar fyr­ir­tæk­is­ins. Sú óánægja náði nýjum hæðum eftir að Pjetri Sig­­urðs­­syni, yfir­­­manni ljós­­mynda­­deildar 365, var sagt upp störf­um­fyrir skemmstu, en Pjetur hafði kvart­að undan Krist­ínu við fyrr­ver­andi mannauðs­­­stjóra fyr­ir­tæk­is­ins vegna meints ein­elt­­­is. Mannauðs­­­stjór­inn, Unnur María Birg­is­dótt­ir, setti af stað for­m­­­lega athugun á ásök­unum Pjet­­­urs en þegar Kristín komst að því að slík athugun stæði yfir var hún stöðvuð af yfir­­­­­stjórn 365 og Pjetur sendur í leyfi. Unnur María hætti störfum í byrjun júní, eftir að hafa starfað hjá fyr­ir­tæk­inu í hálft ár. 

Starfs­­­menn­ Frétta­blaðs­ins og Vísis sendu frá sér yfir­­­lýs­ingu vegna atburð­anna í byrjun síð­ustu viku. Sam­­­kvæmt upp­­­lýs­ingum Kjarn­ans stóðu nær allir starfs­­­menn Vísis og Frétta­­­blaðs­ins sem ekki hafa fjöl­­­skyld­u­­­tengsl við aðal­­­­­rit­­­stjór­ann og náð­ist í, að yfir­­­lýs­ing­unni. Í yfir­­­lýs­ing­unni er upp­­­­­sögn Pjet­­­urs sögð óverð­skuld­uð. Þar eru einnig hörmuð „óá­­­­­­­sætt­an­­­­leg vinn­u­brögð aðal­­­­­­­­­rit­­­­­stjóra og yfir­­­­­­­­­stjórnar fyr­ir­tæk­is­ins í aðdrag­anda upp­­­­­­­­­sagnar Pjet­­­­­urs og við kynn­ingu á henni til sam­­­­­starfs­­­­­manna hans.“ Yfir­­­lýs­ingin var send til allra fjöl­miðla, Ing­i­­­bjargar Pálma­dóttur stjórn­­­­­­­ar­­­­for­­­­manns og aðal­­­eig­anda 365, Sæv­­­ars Freys Þrá­ins­­­sonar for­­­­stjóra 365 og Krist­ín­­­ar, aðal­­­­­­­rit­­­­stjóra fyr­ir­tæk­is­ins. Jakob Bjarnar Grét­­ar­s­­son, frétta­­maður á Vísi, deildi frétt Kjarn­ans um yfir­­lýs­ing­una á Face­­book og sagði í ummælum við hana að málið snú­ist „ekki bara um Pjet­­ur, með fullri virð­ingu fyrir þeim ágæta vini mín­um, frekar að hans mál sé kornið sem fyllir mæl­inn. Blasir það ekki við?“

Auglýsing

Þónokkrir lyk­il­starfs­menn hafa þegar sagt upp störfum vegna ástands­ins. Þeir eru Fanney Birna Jóns­dótt­ir, Vikt­oría Her­manns­dótt­ir, annar rit­stjóri helg­ar­blaðs Frétta­blaðs­ins, og Gyða Lóa Ólafs­dótt­ir, yfir­maður inn­blaðs Frétta­blaðs­ins.





Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None