Vilja setja framtíð Reykjavíkurflugvallar í þjóðaratkvæði

Þorsteinn Sæmundsson, þingmaður Framsóknarflokksins.
Þorsteinn Sæmundsson, þingmaður Framsóknarflokksins.
Auglýsing

Stefnt er að því að leggja fram þings­á­lykt­un­ar­til­lögu um að þjóð­ar­at­kvæða­greiðsla fari fram um fram­tíð Reykja­vík­ur­flug­vallar á allar næstu dög­um. Þor­steinn Sæmunds­son, þing­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, segir að hún sé í loka­vinnslu en hann býst fast­lega við því að vera á meðal flutn­ings­manna til­lög­un­ar. Ekki liggur fyrir hverjir aðrir muni verða flutn­ings­menn hennar en talið er lík­legt að Krist­ján L. Möll­er, þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar sem hættir á þingi eftir kom­andi kosn­ing­ar, verði fyrsti flutn­ings­maður henn­ar. Engin þing­maður Bjartrar fram­tíðar né Pírata stendur að til­lög­unni. Þetta kemur fram í Frétta­blað­inu í dag. 



Auglýsing

Þar er rætt við Þor­stein sem seg­ist efast um að hægt verði að kjósa um fram­tíð flug­vall­ar­ins sam­hliða kom­andi þing­kosn­ing­um, þótt það væri æski­legt. Hann segir þverpóli­tískan vilja til að setja það í þjóð­ar­at­kvæði hvort að Reykja­vík­ur­flug­völlur verði áfram í Vatns­mýri. 

Var kosið ráð­gef­andi árið 2001

Lengi hefur verið vilji fyrir því hjá Reykja­vík­ur­borg að loka flug­vell­inum og nýta landið í Vatns­mýr­inni undir fram­tíð­ar­upp­bygg­ingu borg­ar­inn­ar.  Árið 2001 kusu borg­ar­búar í ráð­gef­andi atkvæða­greiðslu um hvort flug­­­völl­­ur­inn ætti að vera í Vatns­­­mýr­inni eftir árið 2016. Nið­ur­staða þeirrar kosn­ingar var að alls vildu 50,6 pró­­sent þeirra sem tóku afstöðu að hann myndi fara en 49.4 pró­­sent að hann yrði áfram. 

Nið­ur­staðan var hins vegar ekki bind­andi þar sem borg­ar­stjórn hafði sett skil­yrði um þátt­töku að minnsta kosti helm­ings kosn­inga­bærra manna til að svo yrð­i. Kjör­­sókn var hins vegar 37,1 pró­­sent. 

Í októ­ber 2013 und­ir­rit­uðu full­­trú­ar rík­­is­ins, Reykja­vík­­­ur­­borg­ar og Icelanda­ir Group sam­komu­lag um inn­­an­lands­flug. Sam­komu­lagið var und­ir­­ritað af Jóni Gn­­arr, þá borg­­ar­­stjóri Reykja­vík­ur, Hanna Birna Krist­jáns­dótt­ir, þá inn­­an­­rík­­is­ráð­herra, Sig­­mundur Davíð Gunn­laugs­­son, þá for­­sæt­is­ráð­herra og Björgólfur Jó­hanns­­son, for­­stjóri Icelanda­ir Group. Sam­kvæmt því var sam­þykkt að ljúka vinnu við end­ur­skoðun á deiliskipu­lagi fyrirReykja­vík­­­­­ur­flug­­­völl og ákveðið að hann yrði á slíku til 2022 í stað 2016. Í milli­tíð­inni átti að vinna skýrslu um fram­tíð­ar­stað­setn­ingu inn­an­lands­flug­vall­ar, en hún var unnin af Rögnu­nefnd­inni svoköll­uð­u. Skýrslu henn­ar var skilað í fyrra og nið­­­ur­­­staða nefnd­­­ar­innar leysti ekki deilur um fram­­­tíð Reykja­vík­­­­­ur­flug­vallar á nokkurn hátt. Ákvörðun á grund­velli til­­­lagna hennar liggur enn ekki fyr­­­ir. Þó hefur Icelandair Group greint frá því að félagið hyggi á til­rauna­flug í Hvassa­hrauni til að kanna betur fýsi­leika stað­setn­ing­ar­inn­ar. 

Hæsti­réttur lætur loka neyð­ar­braut

Stórt skref í átt að lokun Reykja­vík­ur­flug­vallar var stigið með dómi Hæsta­réttar í júní síð­ast­liðnum, þegar hann komst að þeirri nið­ur­stöðu að ríkið þyrfti að standa við sam­komu­lag sitt við Reykja­vík­­­ur­­borg um að loka norð­aust­­ur/suð­vest­­ur­-flug­braut­inni, sem stundum er kölluð neyð­­ar­braut­in, á Reykj­­ar­vík­­­ur­flug­velli innan 16 vikna. 

Lokun braut­­­ar­innar hefur staðið til árum sam­­­an. Árið 2005 und­ir­­­rit­uðu þá­ver­andi borg­­­ar­­­stjóri Stein­unn Val­­­dís Ósk­­­ar­s­dóttir og þáver­andi sam­­­göng­u­ráð­herra Sturla Böðv­­­­­ar­s­­­son sam­komu­lag um sam­­­göng­u­mið­­­stöð sem rísa skyldi í Vatns­­­­­mýr­inni. Hún átti að rísa þar sem braut 06/24 er. Árið 2009 und­ir­­­rit­uðu Krist­ján L. Möll­er, þáver­andi sam­­­göng­u­ráð­herra, og Hanna Birna Krist­jáns­dótt­ir, þáver­andi borg­­­ar­­­stjóri, sam­komu­lag um að brautin ætti að loka, en þó var sá fyr­ir­vari á því sam­komu­lagi að það myndi rísa sam­­­göng­u­mið­­­stöð við enda brautar 06/24.

Fram­sókn­ar­menn vilja taka skipu­lags­vald af borg­inni

Þing­menn og borg­ar­full­trúar Fram­sókn­ar­flokks­ins hafa lengi barist fyrir veru flug­vall­ar­ins í Vatns­mýr­inni. Fyrir síð­ustu sveita­stjórn­ar­kosn­ingar var fram­boði flokks­ins breytt í fram­boð Fram­sóknar og flug­vall­ar­vina skömmu fyrir kosn­ing­ar, þegar fylgi þess mæld­ist afleitt. 

Hösk­­uldur Þór­halls­­son, þing­­maður Fram­­sókn­­ar­­flokks­ins og for­­maður umhverf­is- og sam­­göng­u­­nefndar Alþing­is, til­kynnti í sumar að hann ætli að leggja fram frum­varp á Alþingi þegar það kemur saman aftur sem mundi koma í veg fyrir að norð­aust­­ur/suð­vest­­ur­-flug­braut­inni verði lok­að. 

Hann hefur einnig lagt fram frum­vörp sem fela í sér að skipu­lags­vald sé tekið af Reykja­vík­­­ur­­borg á Reykja­vík­­­ur­flug­velli og fært til rík­­is­ins. Þau hafa ekki hlotið braut­ar­geng­i. 





Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None