Ísland opnast - Hvað breytist?

Þó verið sé að losa um höft, þá er ekki verið að afnema þau. Meginþorri almennings mun ekki finna fyrir neinum fjármagnshöftum.

kauphöll
Auglýsing

Fyr­ir­hugað afnám hafta breytir stöðu mála hér á landi, og opnar á víð­tæk­ari fjár­mála­þjón­ustu bæði hér á landi og erlend­is. Almenn­ingur getur brátt farið að stunda við­skipti með hluta­bréf erlendis í einka­bank­an­um, en bank­arnir vinna nú að því að und­ir­búa sig fyrir laga­breyt­ingar sem opna fyrir frek­ari gjald­eyr­is­við­skipti.

Burt með flug­mið­ana

Almenn­ingur mun fá að fjár­­­festa fyrir allt að 100 millj­­ónir króna erlendis í kjöl­far þess.

Þótt að í boð­uðum breyt­ingum á höft­unum felist aukið frelsi til fjár­­­magns­hreyf­­ingu til og frá land­inu þá verða höft ekki afn­um­in. Enn verða tak­­mark­­anir og Seðla­­banki Íslands mun áfram hafa ýmis tól til inn­­­grips telji hann þess þurfa.

Auglýsing

Strax við gild­is­­töku lag­anna mun bein erlend fjár­­­fest­ing inn­­­lendra aðila verða ótak­­mörkuð en áfram háð stað­­fest­ingu Seðla­­banka Íslands. Fjár­­­fest­ing í fjár­­­mála­­gern­ingum upp að ákveð­inni upp­­hæð verður að mestu frjáls og ein­stak­l­ingar mega kaupa sér eina fast­­eign á ári erlendis sem má kosta hvað sem er. Þá verður dregið úr skila­­skyldu inn­­­lendra aðila á erlendum gjald­eyri og hún afnumin vegna lán­­töku ein­stak­l­inga hjá erlendum aðilum vegna kaupa á fast­­eign, far­ar­tæki eða fjár­­­fest­inga erlend­­is. Þá munu Íslend­ingar sem hyggja á ferða­lög erlendis ekki lengur þurfa að fram­vísa flug­­miða til að geta keypt gjald­eyri í banka. 

Íslendingar munu geta keypt sér fasteignir erlendis, en sú heimild skipti meginþorra fólks á Íslandi engu mali, enda eru sárafáir sem hafa efni á því að kaupa sér erlendis, sé mið tekið af heildinni.

Nýlegar fréttir af auk­inni starf­semi íslenskra fjár­mála­fyr­ir­tækja erlend­is, sýna enn fremur að losun hafta fylgja tæki­færi. GAMMA fékk nýverið starfs­leyfi í Bret­landi, og sagði Gísli Hauks­son, for­stjóri og stofn­andi, að fyr­ir­tækið vildi styrkja þjón­ust­una og nýta tæki­færin sem fylgja losun hafta.

Þá til­kynnti verð­bréfa­fyr­ir­tækið Fossar mark­aðir hf.  að það hefði opnað skrif­stofu í Stokk­hólmi og ráðið Andra Guð­munds­son til að leiða upp­bygg­ingu félags­ins á Norð­ur­lönd­um.  Fossar mark­aðir hóf starf­semi fyrir ári síðan á inn­lendum mark­aði og er leið­andi í þjón­ustu við erlenda aðila á Ísland­i. 

„Við sjáum mikil tæki­færi í því að hefja starf­semi utan Íslands á þessum tíma­punkti. Stór skref í afnámi hafta eru handan við hornið og Ísland verður virk­ari þátt­tak­andi á alþjóð­legum fjár­mála­mörk­uð­u­m,“ segir Har­aldur I. Þórð­ar­son fram­kvæmda­stjóri félags­ins, Andri Guð­munds­son verður starf­andi fyrir Fossa í Sví­þjóð. „Í Stokk­hólmi munum við sinna bæði erlendum fjár­festum sem hyggja á fjár­fest­ingar á Íslandi og íslenskum fjár­festum og fyr­ir­tækjum sem hafa hug á að nýta þau fjöl­mörgu tæki­færi sem fylgja afnámi hafta,“  segir Andri Guð­munds­son sem er búsettur í Sví­þjóð og hefur verið í stjórn Fossa mark­aða á Íslandi.

Hvað ger­ist á hluta­bréfa­mark­aði?

For­vitni­legt verður að fylgj­ast með því hver áhrifin verða á verð­bréfa­mark­aði hér á landi, þegar opnað verður á fjár­fest­ingu erlend­is. Ekki er víst að líf­eyr­is­sjóð­irnir stökkvi til og selja hluta­bréf í inn­lendum hluta­bréf­um, en rýmkaðar heim­ildir til fjár­fest­inga erlendis gætu minnkað kaup­þrýst­ing í skráðum félög­um, og þannig dregið úr eft­ir­spurn eftir hluta­bréf­um.

Ótíma­bært er þó að full­yrða nokkuð um slíkt, enda erfitt að sjá fyr­ir­ hvernig fjár­festar hegða sínum fjár­fest­ingum á tímum breyt­inga. Losun hafta gæt­i opnað fyrir fjár­fest­ingar frá erlendum sjóð­um, sem hafa ekki haft heim­ildir til­ að fjár­festa í ríkjum sem eru með fjár­magns­höft. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None