Ellen Calmon, formaður Öryrkjabandalands Íslands (ÖBI), segir Eygló Harðardóttur, félags- og húsnæðismálaráðherra, hafa staðið með öllum ákvörðunum ríkisstjórnar Íslands „sem hafa fjallað um að halda lífeyrisþegum í fátækragildu.“ Hún segist hafa margoft fundað með Eygló á kjörtímabilinu og lagt fram margar lausnamiðaðar hugmyndir vegna ýmissa þátta í almannatryggingakerfinu. Ráðherrann hafi hins vegar kosið að fara „fara þá leið að gera ekki breytingar í þágu fólksins.“ Því sé ekki hægt að kenna Bjarna Benediktssyni, fjármála- og efnahagsráðherra, um þá afstöðu og ákvarðanir sem Eygló hafi sjálf haft og tekið á kjörtímabilinu. Þetta kemur fram í stöðuuppfærslu Ellenar á Facebook.
Eygló sat hjá við atkvæðagreiðslu um fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar fyrir árin 2017-2021 þegar hún fór fram fyrr í gær. Í stöðuuppfærslu á Facebook í dag sagði Eygló: „Á þessu kjörtímabili höfum við náð miklum árangri í stjórn efnahagsmála með því að lækka skuldir heimilanna og hækka laun fólks í samræmi við gildandi stjórnarsáttmála. Í fjármálastefnu og fjármálaáætlun fjármálaráðherra til áranna 2017 til 2021 er ekki hugað nægilega að lífeyrisþegum og barnafjölskyldum og hef ég sett alvarlega fyrirvara við þá forgangsröðun. Því sat ég hjá við atkvæðagreiðsluna.“
Mikil kergja er innan Sjálfstæðisflokksins með það að ráðherra í ríkisstjórn Íslands hafi ekki stutt fjármálaáætlun hennar. Sigurður Ingi Jóhannsson forsætisráðherra túlkar hjásetu Eyglóar Harðardóttur, félags- og húsnæðismálaráðherra, við atkvæðagreiðslu um fimm ára fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar þó ekki sem vantraust á hann og Bjarna Benediktsson. Hann segir það rétt að óvanalegt sé að ráðherra styðji ekki svona mál en telur það ekki tengjast átökum innan Framsóknarflokksins.