Útboði á eignarhlut ríkissjóðs Íslands í Reitum fasteignafélagi hf. lauk klukkan 8:30 í dag, mánudaginn 22. ágúst 2016. Markaðsviðskipti Landsbankans höfðu umsjón með útboðinu og fengust 3,9 milljarðar fyrir 6,38 prósent eignarhlut í fyrirtækinu.
Fjárfestar óskuðu eftir því að kaupa 73.010.000.- hluta í Reitum, eða sem nemur 9,9% af heildarhlutafé í Reitum.
„Sölugengi í útboðinu var ákveðið 83,30 krónur á hlut. Heildarnafnverð samþykktra tilboða, eftir skerðingu var 47.222.796 hlutir eða sem samsvara 6,38% af heildarhlutafé Reita. Heildarsöluverðmæti samþykktra tilboða eftir skerðingu er því rúmlega 3,9 milljarðar króna. Að útboðinu loknu á ríkissjóður ekki eignarhlut í Reitum,“ segir í tilkynningu frá Landsbankanum, sem birtist á vef bankans.
Öll samþykkt tilboð voru boðin fjárfestum á sama gengi, þar sem lægsta samþykkta gengi réð sölugenginu. Samþykkt tilboð sem bárust á sama gengi og sölugengi voru skert sem nam umframeftirspurn, en þó ekki niður fyrir 200.000 hluti að nafnverði sem var lágmarksfjöldi hluta sem hægt var að bjóða í útboðinu. Tilboðum sem bárust á lægra gengi en sölugengi var hafnað.
Viðskiptadagur vegna útboðsins er 22. ágúst 2016 og greiðslu- og afhendingardagur vegna viðskiptanna er miðvikudagurinn 24. ágúst 2016. Útboðið fór fram í samræmi við útboðsskilmála sem birtir voru á vefsíðu Landsbankans, www.landsbankinn.is þann 19. ágúst 2016.