Um tuttugu starfsmenn eignarhaldsfélagsins Kaupþings, sem tók við hlutverki slitabús Kaupþings að loknum nauðasamningum bankans í lok árs í fyrra, geta fengið samtals tæplega 1.500 milljónir króna í bónusgreiðslur ef markmið um hámörkum á virði óseldra eigna félagsins næst. Bónusgreiðslurnar eiga að greiðast út ekki síðar en í lok apríl 2018. Langstærsta óselda eign Kaupþings er 87 prósent hlutur í Arion banka, viðskiptabanka sem starfar að mestu á íslenskum markaði og var endurreistur af íslenska ríkinu með íslenskum innstæðum.
Greint er frá málinu í DV í dag. Þar segir að 20 manna hópurinn sé að stórum hluta sá sami og hafi þegar fengið bónusgreiðslur upp á tugi milljóna króna þegar Kaupþing lauk nauðasamningsgerð um síðustu áramót. Greiðslurnar sem þeir eiga nú von á eru hins vegar mun hærri. Samkvæmt frétt DV geta einstakir starfsmenn í sumum tilfellum fengið um og yfir 100 milljónir króna í sinn hlut.
Bónuskerfið er hluti af starfskjarastefnu fyrir starfsmenn Kaupþingbs sem lögð verður fyrir aðalfund félagsins sem fer fram 30. ágúst, í næstu viku. Í henni er sérstaklega tekið fram að bónuskerfið nái ekki til stjórnar og annarra æðstu stjórnenda Kaupþings, en sá hópur telur samtals fimm manns. Í DV segir hins vegar að hugsanlega verði komið upp sérstöku bónuskerfi fyrir þá.