Ögmundur og Sigmundur báðir undirritað samkomulag um flugvöllinn

Tveir flutningsmenn tillögu þar sem opnað er á að taka skipulagsvald af Reykjavíkurborg hafa undirritað samkomulög um flugvöllinn í Vatnsmýri og lokun brauta. Ögmundur Jónasson undirritaði samkomulag þar sem áréttað er að skipulagsvald sé hjá borginni.

Flugvöllurinn í Vatnsmýri
Auglýsing

Ögmund­ur Jón­as­son og Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, sem eru flutn­ings­menn ­til­lögu um að halda þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu um veru flug­vall­ar­ins í Vatns­mýri, hafa báðir komið að stórum á­kvörð­unum um flug­völl­inn sem ráð­herrar og und­ir­rit­að ­sam­komu­lög við Reykja­vík­ur­borg um flug­völl­inn og lok­an­ir flug­brauta.

Flug­völl­ur­inn í Vatns­mýri verður að öllum lík­indum kosn­inga­mál, enda ekki hægt að halda ­þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu um málið sam­hliða kosn­ing­unum í haust. 25 ­þing­menn úr fjórum flokkum lögðu þings­á­lykt­un­ar­til­lög­una fram, þar með tal­inn allur þing­flokkur Fram­sókn­ar­flokks­ins fyr­ir­ utan Frosta Sig­ur­jóns­son og ráð­herra flokks­ins.

Í þings­á­lykt­un­ar­til­lög­unni er á­lyktað að haldin verði þjóð­ar­at­kvæða­greiðsla um það hvort flug­völlur og mið­stöð inn­an­lands- og sjúkra­flugs skuli á­fram vera í Vatns­mýr­inni í Reykja­vík. Þing­menn­irnir sem ber­a ­til­lög­una fram segja að „öll skyn­sam­leg rök“ hnígi að því að halda flug­vell­inum og mið­stöð inn­an­lands­flugs í Vatns­mýr­inn­i. Þeir opna líka á það í grein­ar­gerð með til­lög­unni að rík­ið taki burt skipu­lags­vald borg­ar­innar á svæð­inu þar sem flug­völl­ur­inn er.

Auglýsing

Þegar Ögmundur Jón­as­son var inn­an­rík­is­ráð­herra, í apríl 2013, skrif­aði hann und­ir­ ­sam­komu­lag um end­ur­bætur á aðstöðu fyrir far­þega og ­þjón­ustu­að­ila á Reykja­vík­ur­flug­velli, ásamt Jóni Gnarr, þá­ver­andi borg­ar­stjóra. Í því sam­komu­lagi fólst að norð-aust­ur/suð-vestur flug­brautin yrði lögð af og það land ­sem við það losn­aði yrði skipu­lagt undir bland­aða byggð. 

Þar er einnig áréttað að Reykja­vík­ur­borg fari með skipu­lags­vald á flug­vall­ar­svæð­inu sam­kvæmt skipu­lags­lög­um. Þá vinni inn­an­rík­is­ráð­herra í sam­ræmi við vilja Alþingis hvað varð­ar­ flug­völl­inn eins og hann birt­ist í sam­göngu­á­ætl­un. Þeg­ar Ög­mundur var ráð­herra tal­aði hann iðu­lega um að hann vild­i halda flug­vell­inum í Vatns­mýri, en eins og hann sagði í ræðu á Al­þingi í sept­em­ber 2012 að „all­ir lands­menn eiga að hafa aðkomu að ákvörðun í þessum efnum þótt því sé að sjálf­sögðu haldið til haga að skipu­lags­valdið er ­síðan hjá borg­inn­i.“

Stjórn­ar­skipti urðu skömmu síð­ar­, og í októ­ber sama ár skrif­uðu rík­ið, Reykja­vík­ur­borg og Icelandair undir sam­komu­lag um inn­an­lands­flug. Þá var Sig­mund­ur Da­víð orð­inn for­sæt­is­ráð­herra og und­ir­rit­aði sam­komu­lag­ið ­fyrir hönd rík­is­ins. Í því sam­komu­lagi var meðal ann­ars kveð­ið á um að Reykja­vík­ur­borg sam­þykkti að fresta lokun norð­ur­-­suð­ur­ flug­braut­ar­innar frá árinu í ár til árs­ins 2022. Þá var ­sam­komu­lag gert um skipan Rögnu­nefnd­ar­innar svoköll­uðu, um að ­full­kanna aðra kosti en fram­tíð­ar­flug­völl í Vatns­mýri.

Sam­hliða því var skrifað und­ir­ ­sam­komu­lag milli ríkis og borg­ar, sem Jón Gnarr og Hanna Birna Krist­jáns­dóttir und­ir­rit­uðu sem borg­ar­stjóri og inn­an­rík­is­ráð­herra, þar sem kveðið var á um að til­kynnt yrð­i um lokun norð­aust­ur/suð­vestur braut­ar­inn­ar.

Í grein í Morg­un­blað­inu í dag seg­ir ­Sig­mundur Davíð hins vegar að hann hafi gert það að skil­yrð­i ­fyrir sam­komu­lag­inu að norð­aust­ur/suð­vestur braut­inni yrði ekki lok­að.

„Í októ­ber 2013 var þess farið á leit við mig sem for­­sæt­is­ráð­herra að ég und­ir­­rit­aði sam­komu­lag rík­­is­ins, Reykja­vík­­­ur­­borgar og Flug­­­fé­lags Íslands­ (eða Icelandair Group) um að gerð yrði enn ein úttekt á því hvar best væri að hafa Reykja­vík­­­ur­flug­­völl. ­Fyrir vikið sögð­ust full­­trúar borg­­ar­innar til í að eyða óvissu um flug­­­völl­inn af sinni hálfu a.m.k. til árs­ins 2022. [...]Í drögum að sam­komu­lag­in­u var tekið fram að aðilar féllust á að NA/SV-braut­inni yrð­i lok­að. Þetta sagði ég vera frá­­­leitt skil­yrði sem ekki kæmi til greina að sam­­þykkja. Auk þess sem ég gerð­i ­at­huga­­semdir við fleiri atriði í drög­un­­um. Ég kvaðst svo reið­u­­bú­inn að und­ir­­rita ­sam­komu­lagið gegn því skil­yrði að umrædd atrið­i yrðu tekin út og það væri á hreinu að ekki væri verið að ­sam­­þykkja lokun NA/SV-braut­­ar­inn­­ar. Þvert á móti væri ég að fall­­ast á þátt­­töku í und­ir­­rit­un­inni til að tryggja að ekki yrð­i ­samið um lokun braut­­ar­inn­­ar.“

Sig­­mund­ur Da­víð segir að fall­ist hafi verið á þetta og ­sam­komu­lagið svo und­ir­­ritað í við­­ur­vist ­ljós­­mynd­­ara og blaða­­manna. “Það kom mér því mjög á óvart að dóm­stólar skyldu telja rík­ið skuld­bundið til að loka neyð­­ar­braut flug­vall­­ar­ins þegar ég sem for­­sæt­is­ráð­herra hafði bein­línis gert það að skil­yrði fyr­ir­ und­ir­­ritun sam­komu­lags við borg­ina að horfið yrði frá því að semja um það.“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None