Sömu eigendur að stórum hluta í Vodafone og Símanum

Þrír lífeyrissjóðir eiga um þriðjung í bæði Vodafone og Símanum. Síminn renndi SkjáEinum inn í sig í fyrra og nú ætlar Vodafone að kaupa ljósvakamiðla 365. Einkarekið sjónvarp á Íslandi verður að mestu í eigu sömu aðila.

Greint var frá einkaviðræðum um kaup á hluta eigna 365 í gær.
Greint var frá einkaviðræðum um kaup á hluta eigna 365 í gær.
Auglýsing

Þrír stærstu eig­endur Voda­fone eru líka þrír stærstu eig­endur Sím­ans. Gangi kaup Voda­fone á ljós­vaka­miðlum og fjar­skipta­þjón­ustu 365 miðla munu sömu þrír aðil­arnir verða eig­endur að félög­unum sem eiga tvær stærstu einka­reknu sjón­varps­stöðvar lands­ins og flest allar einka­reknar útvarps­stöðvar þess.

Aðil­arnir þrír eru stærstu líf­eyr­is­sjóðir lands­ins. Líf­eyr­is­sjóður versl­un­ar­manna er stærsti eig­andi bæði Voda­fone (13,66 pró­sent) og Sím­ans (14,27 pró­sent). Gildi Líf­eyr­is­sjóður á 13,23 pró­sent í Voda­fone og 9,22 pró­sent í Sím­anum og Líf­eyr­is­sjóður starfs­manna rík­is­ins á 7,06 pró­sent í Voda­fone en 7,44 pró­sent í Sím­an­um. Sam­tals eiga þessir þrír líf­eyr­is­sjóðir 31 pró­sent í Sím­anum og 34 pró­sent í Voda­fo­ne.

Við­skipta­blaðið greindi frá því um miðjan ágúst að þegar 20 stærstu hlut­hafar hvors félags eru teknir saman komi í ljós að tólf þeirra eigi hlut í báðum félög­um. Þessir tólf hlut­hafar eigi alls 57,1 pró­sent hlut í Voda­fone og 56,9 pró­sent hlut í Sím­an­um.

Auglýsing

Vilja kaupa hluta 365 á átta millj­arða

Greint var frá því í gær að Voda­fone hafi hafið einka­við­ræður við 365 miðla um að kaupa ljós­vaka­miðla og fjar­skipta­þjón­ustu­hluta fyr­ir­tæk­is­ins á átta millj­arða króna. 3,4 millj­arðar króna eiga að greið­ast í reiðufé og með hlutum í Voda­fone ásamt því að félagið mun taka yfir 4,6 millj­arða króna af vaxta­ber­andi skuldum verði af kaup­un­um.

Það sem Voda­fone er að kaupa eru sjón­varps­stöðvar á borð við Stöð og Stöð 2 Sport og útvarps­stöðvar á borð við Bylgj­una, X-ið og FM957 auk inter­net og síma­við­skipta.

Gangi kaupin eftir mun því stærsta einka­rekna sjón­varps- og útvarps­starf­semi fær­ast yfir til fjar­skipta­fé­lags. Eftir í 365 miðlum verður Frétta­blaðið og Vísir og þá Frétta­stofa 365 miðla, en þó á enn eftir að semja nákvæm­lega um útfærslu á fram­tíð henn­ar.

Kjarn­inn fjall­aði ítar­lega um hin ætl­uðu kaup í frétta­skýr­ingu í gær.

Skjá­Einum rennt inn í Sím­ann

Í októ­ber í fyrra var Skjá­Einum rennt inn í Sím­ann, sem hefur verið að leggja aukna áherslu á miðlun efnis og afþrey­ingar í gegnum fjar­skipta­net félags­ins. Í sumar var nafn stöðv­ar­innar svo lagt niður og tekið upp nafnið Sjón­varp Sím­ans. Sam­hliða því að SkjárEinn rann inn í Sím­ann var stofnuð streym­isveita í áskrift og línu­leg dag­skrá sjón­varps­stöðv­ar­innar opnum öllum lands­mönn­um. SkjárEinn hafði þá verið selt í áskrift frá árinu 2009.

Þrjár aðrar einka­reknar sjón­varps­stöðv­ar, sem sjón­varpa línu­legu efni, eru reknar á Íslandi.  Þær eru Hring­braut, ÍNN og N4.

Hið rík­is­rekna RÚV er svo vita­skuld risi á mark­aðn­um, en tekjur fyr­ir­tæk­is­ins koma bæði af sér­stakri skatt­lagn­ingu sem öllum er skylt að greiða árlega og af aug­lýs­inga­mark­aði.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None