Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, fyrrverandi varaformaður Sjálfstæðisflokksins, mun leiða lista Viðreisnar í Suðvesturkjördæmi. Þetta er fullyrt í DV í dag. Þorgerður Katrín hefur ekki viljað svarað með afgerandi hætti spurningum fjölmiðla um hvort hún hyggi á framboð fyrir hinn nýja flokk en orðrómur um það hefur verið afar hávær um langt skeið.
Þorgerður Katrín mun því fara fram í sama kjördæmi og Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, situr. Bjarni og Þorgerður Katrín eru fyrrverandi samherjar og vinir.
Þorgerður Katrín hefur starfað hjá Samtökum atvinnulífsins (SA) undanfarin þrjú ár. Þorsteinn Víglundsson, sem var framkvæmdastjóri SA á þeim tíma, hefur einnig tilkynnt framboð fyrir Viðreisn og ætlar að leiða lista flokksins í öðru hvoru Reykjavíkurkjördæminu.
Þorgerður Katrín hefur áður setið á Alþingi. Hún tók þar sæti árið 1999 og var mennta- og menningarmálaráðherra árin 2004 til 2009. Hún ákvað hins vegar ekki að gefa kost á sér á lista Sjálfstæðisflokksins í síðustu þingkosningum og hætti á þingi. Samkvæmt heimildum Kjarnans var mikið þrýst á hana að fara fram fyrir Sjálfstæðisflokkinn að nýju en Þorgerður Katrín hafnaði þeim bónum. Hún hefur þó áfram verið skráð í Sjálfstæðisflokkinn en ljóst er að hún mun segja sig úr þeim flokki í ljósi nýjustu tíðinda.
Kjarninn fjallaði ítarlega um framboð Viðreisnar, áhrif þess á Sjálfstæðisflokkinn og mögulegt framboð Þorgerðar Katrínar í fréttaskýringu nýverið. Hana má lesa hér.
Komin mynd á hverjir leiða hjá Viðreisn
Með framboði Þorgerðar Katrínar er komin nokkuð skýr mynd á hverjir muni skipa efstu sætin á lista Viðreisnar í fyrstu kosningunum sem stjórnmálaflokkurinn tekur þátt í. Hanna Katrín Friðriksson, framkvæmdarstjóri heilbrigðissviðs Icepharma, sækist eftir því að leiða annað Reykjavíkurkjördæmið, og Þorsteinn Víglundsson mun, líkt og áður sagði, væntanlega leiða hitt. Þá ætla Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir, deildarforseti lagadeildar Háskólans á Bifröst, og Pawel Bartoszek, stærðfræðingur og pistlahöfundur, einnig fram fyrir Viðreisn í Reykjavík og búist er við að þau verði í næstu sætum fyrir neðan Hönnu Katrínu og Þorstein.
Benedikt Jóhannesson, formaður Viðreisnar, greindi frá því í síðustu viku að hann muni verða í fyrsta sæti á framboðslista flokksins í Norðausturkjördæmi. Áður hafði verið búist við því að hann myndi bjóða fram í öðru hvoru Reykjavíkurkjördæminu. Þá hefur verið greint frá því að Gylfi Ólafsson, heilsuhagfræðingur frá Ísafirði, muni leiða lista Viðreisnar í Norðvesturkjördæmi. Jóna Sólveig Elínardóttir, aðjúnkt við stjórnmálafræðideild Háskóla Íslands, hefur tilkynnt um framboð og þykir líklegust til að vera í efsta sæti á lista flokksins í Suðurkjördæmi.