Vöruviðskipti í ágúst neikvæð um 12,7 milljarða

Það sést vel á tölum um vöru- og þjónustuviðskipti hversu mikil áhrif ferðaþjónustan er að hafa á gang mála í íslenska hagkerfinu.

vestmannaeyjar_20288900751_o.jpg
Auglýsing

Sam­kvæmt bráða­birgða­tölum fyrir ágúst 2016 nam verð­mæti vöru­út­flutn­ings tæp­lega 40,7 millj­örðum króna og verð­mæti vöru­inn­flutn­ings rúm­lega 53,3 millj­örðum króna. Vöru­við­skiptin íslenska hag­kerf­is­ins í ágúst voru því óhag­stæð um 12,7 millj­arða króna. 



Frá þessu var greint á vef Hag­stofu Íslands í gær.



Vöru­skipta­jöfn­uður hefur verið nei­kvæður að und­an­förnu, en sé þjón­ustan tekin með í reikn­ing­inn er vöru- og þjón­ustu­jöfn­uður jákvæður um sem nemur 5 pró­sent af árlegri land­fram­leiðslu. Í fyrra var vöru- og þjón­ustu­jöfn­uður jákvæður um 155,2 millj­arða króna, og mun­aði þar mest um ferða­þjón­ust­una. 
Vöru­skipta­jöfn­uður var óhag­stæður um 35,5 millj­arða en þjón­ustu­jöfn­uður hag­stæður um 190,7 millj­arða.

Gera má ráð fyrir að styrk­ing krón­unnar gagn­vart erlendum myntum að und­an­förnu, hafi ýtt undir neyslu á inn­fluttum vörum sem hafa lækkað í verði í krónum talið. Evran er nú komin niður í 129 krónur en hún kost­aði 150 krónur fyrir ári síð­an. Banda­ríkja­dalur kostar nú rúm­lega 115 krónur en hann kost­aði 136 krónur fyrir ári síð­an.

Í nýj­ustu Pen­inga­málum Seðla­banka Íslands segir að gert sé ráð fyrir áfram­hald­andi tölu­verðum afgangi af vöru- og þjón­ustu­við­skipt­um. „Horfur eru á að útflutn­ingur vöru og þjón­ustu muni aukast um 8½% á þessu ári sem er nokkru meiri vöxtur en spáð var í maí. Vöxt­ur­inn er að tals­verðu leyti bor­inn uppi af auknum þjón­ustu­út­flutn­ingi, en ferða­mönnum hefur fjölgað ört og korta­velta þeirra hér á landi jókst mikið á fyrri hluta árs­ins frá sama tíma í fyrra. Horfur um vöru­út­flutn­ing eru hins vegar svip­aðar og í maí en sam­setn­ing vaxt­ar­ins hefur breyst lít­il­lega. Sam­an­borið við ma­í­spá bank­ans er nú búist við minni vexti álút­flutn­ings og meiri ­sam­drætti í útflutn­ingi sjáv­ar­af­urða, þar sem afla­heim­ildir sem út­hlutað var á fisk­veiði­ár­inu sem hefst í sept­em­ber reynd­ust minn­i en gert var ráð fyrir í síðust­u ­Pen­inga­mál­u­m en á móti vegur að ­spáð er meiri útflutn­ingi af öðrum vör­um. Áætlað er að nokk­uð muni hægja á útflutn­ings­vexti á næstu árum aðal­lega sakir lít­ils hag­vaxtar í helstu við­skipta­löndum og hækk­unar raun­geng­is,“ segir í Peninga­mál­um.

Auglýsing





Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None