Ekki vitað hver lánaði Framsókn 50 milljónir

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson er formaður Framsóknarflokksins.
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson er formaður Framsóknarflokksins.
Auglýsing

Höf­uð­stöðvar Fram­sókn­ar­flokks­ins voru veð­settar fyrir 50 millj­óna króna láni í maí síð­ast­liðn­um. Í trygg­inga­bréfi sem þing­lýst var vegna láns­ins kemur ekki fram hver lán­veit­and­inn er, en nöfn ann­arra lán­veit­enda koma fram á öðrum lánum sem hvíla á húsi Fram­sókn­ar­flokks­ins, sem stendur við Hverf­is­götu 33. Bréfs­efnið sem notað var við  gerð trygg­inga­bréfs­ins var frá fjár­mála­fyr­ir­tæk­inu Kviku. For­stjóri Kviku er mágur for­manns Fram­sókn­ar­flokks­ins. Frá þessu er greint í Frétta­tím­anum í dag. 

Við­skiptin fóru fram í gegnum eign­ar­halds­fé­lagið Skúla­garð hf., sem á skrif­stofu­hús­næði Fram­sókn­ar­flokks­ins. Tveir stjórn­ar­menn þess, Sig­rún Aspelund og Þor­finnur Jóhann Björns­son, eru starfs­menn á skrif­stofu flokks­ins. Hvor­ugt þeirra sagð­ist vita hver væri lán­veit­and­inn. 

Auglýsing

Einar Gunnar Ein­ars­son, sem er nýtek­inn við sem fram­kvæmda­stjóri Fram­sókn­ar­flokks­ins, vildi ekki veita blað­inu við­tal vegna máls­ins og Jóhannes Þór Skúla­son, aðstoð­ar­maður Sig­mundar Dav­íðs Gunn­laugs­sonar for­manns, sagði málið á for­ræði fram­kvæmda­stjóra. 

Val­höll veð­sett og óljóst eign­ar­hald hjá Sam­fylk­ingu

Frétta­tím­inn greinir einnig frá því að Val­höll, höf­uð­stöðvar Sjálf­stæð­is­flokks­ins sé veð­sett Lands­bank­an­um, sem er í eigu rík­is­ins, fyrir 360 millj­ónir króna láni. Það lán var tekið í fyrra og með töku þess tvö­föld­uð­ust skuld­irnar sem hvíla á Val­höll. Hús­næðið er metið á 480 millj­ónir króna. Á meðal þeirra sem skrif­uðu undir lánið var Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra og for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins. 

Hús­næð­is­mál Sam­fylk­ing­ar­innar hafa líka verið tölu­vert í fréttum á þessu ári, en hún leigir hús­næði á Hall­veig­ar­stíg 1 af tveimur félög­um, Sig­fús­ar­sjóði og Alþýðu­húsi Reykja­vík­ur. Vakin hefur verið athygli á því að félagið Alþýðu­hús Reykja­víkur sé í eigu félag­anna Fjal­ars og Fjölnis en eign­ar­hald þeirra er óljóst. Sig­fús­ar­sjóður var stofn­aður árið 1952 til minn­ingar um Sig­fús Sig­ur­hjart­ar­son, þing­mann Sós­í­alista­flokks­ins og rit­stjóra Þjóð­vilj­ans.

Í apríl síð­ast­liðnum birt­ist frétt á vefSam­fylk­ing­ar­innar sem Krist­ján Guy Burgess, fram­kvæmda­stjóri henn­ar, er skrif­aður fyr­ir. Þar segir „Eig­endur hús­næð­is­ins eru sjálf­stæð­ir lög­að­ilar sem eru óháðir og ótengdir Sam­fylk­ing­unni. Stað­fest hefur verið að þeir aðilar eru íslenskir og ekki með starf­semi erlend­is. Þeir eru heldur ekki, né hafa verið partur af sam­stæðu Sam­fylk­ing­ar­inn­ar. Flokk­ur­inn hefur engin áhrif á stjórn eða fram­kvæmda­stjórn félag­anna tveggja. Sam­fylk­ingin hefur hvorki inn­sýn í eign­ar­hald eða fjár­mál þeirra, né neins konar boð­vald yfir þeim."

Vinstri græn seldu hús­næði sitt við Suð­ur­götu árið 2014 til að rétta við fjár­hags­stöðu sína. Önnur stjórn­mála­fram­boð sem hyggja á þátt­töku í kosn­ing­unum í haust eiga ekki eigið hús­næð­i. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None