Hanna Katrín Friðriksson, framkvæmdarstjóri heilbrigðissviðs Icepharma, leiðir lista Viðreisnar í Reykjavíkurkjördæmi suður í komandi kosningum. Pawel Bartoszek, stærðfræðingur og pistlahöfundur, situr í öðru sæti á listanum og Dóra Sif Tynes, lögfræðingur situr í þriðja sæti. Sigríður María Egilsdóttir, sem tilkynnti í gær að hún ætlaði að vera á lista Viðreisnar, situr í fimmta sæti listans. Fastlega er búist við að Þorsteinn Víglundsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, leiði hitt Reykjavíkurkjördæmið fyrir Viðreisn og Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir, deildarforseti lagadeildar Háskólans á Bifröst, verður að öllum líkindum í öðru sæti þess lista. Þegar liggur fyrir að Benedikt Jóhannsson, formaður Viðreisnar, muni leiða flokkinn í Norðvesturkjördæmi, að Gylfi Ólafsson verður í efsta sæti í Norðvesturkjördæmi og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, fyrrverandi varaformaður Sjálfstæðisflokksins, verður í fyrsta sæti í Suðvesturkjördæmi. Þá er fastlega búist við því að Jóna Sólveig Elínardóttir, aðjúnkt við stjórnmálafræðideild Háskóla Íslands, leiði lista Viðreisnar í Suðurkjördæmi.
Framboðslisti Framsóknarflokksins í Kraganum var kynntur í gærkvöldi. Þar mun Eygló Harðardóttir, félags- og húsnæðismálaráðherra, leiða listann og Willum Þór Þórsson sitja í öðru sæti. Þegar hefur verið tilkynnt um efstu menn á listum flokksins í Reykjavíkurkjördæmunum, þar sem Lilja Alfreðsdóttir utanríkisráðherra og Karl Garðarsson þingmaður munu leiða, og í Norðvesturkjördæmi, þar sem Gunnar Bragi Sveinsson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, er í efsta sæti. Enn á eftir að halda kjördæmaþing flokksins í Norðausturkjördæmi og Suðurkjördæmi.