Vigdís vill að erlendir aðilar leggi mat á skýrsluna

vigdis_15308622114_o.jpg
Auglýsing
Vig­dís Hauks­dótt­ir, for­maður fjár­laga­nefndar Alþingis og þing­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, seg­ist spennt fyrir því að fá erlenda og óháða aðila til að fara yfir skýrslu meiri­hluta nefnd­ar­innar sem kall­ast „Einka­væð­ing bank­anna hin síð­ar­i“. Vig­dís vill að erlendu aðil­arnir leggi mat á mál­ið. Þetta kemur fram í Morg­un­blað­inu í dag.

Skýrslan var kynnt í mánu­dag. Hún er í öllum meg­in­at­riðum end­­ur­­tekn­ing á þeim ásök­unum sem Víglundur Þor­­steins­­son hefur lagt fram þrí­­­vegis á und­an­­förnum árum. Þeim ásök­unum hefur verið hafnað af þeim ein­stak­l­ingum sem þær bein­­ast að, þeim stofn­unum sem komu að mál­inu og í áliti sem unnið var fyrir stjórn­­­skip­un­­ar- og eft­ir­lits­­nefnd fyrir rúmu einu og hálfu ári síð­­­an.

Sam­­kvæmt ásök­un­unum ákvað rík­­is­­stjórn Jóhönnu Sig­­urð­­ar­dótt­­ur, og sér­­stak­­lega fjár­­­mála­ráðu­­neytið undir stjórn Stein­gríms J. Sig­­fús­­son­­ar, í sam­­starfi við emb­ætt­is­­menn og Seðla­­banka Íslands, að hefja aðför gegn neyð­­ar­lög­unum í febr­­úar 2009 með það að mark­miði að færa kröf­u­höfum föllnu bank­anna betri end­­ur­heimt­­ir. Í þess­­ari aðför var ákveðið að hundsa þau drög að stof­­nefna­hags­­reikn­ingum nýju bank­anna þriggja sem birt voru á heima­­síðu Fjár­­­mála­eft­ir­lits­ins (FME) 14. nóv­­em­ber 2008. Í skýrsl­unni er síðan reiknað út að rík­­is­­sjóður hafi tekið á sig 296 millj­­arða króna í áhættu í þágu kröf­u­hafa með þessum aðgerð­­um.

Auglýsing

Kjarn­inn fjall­aði ítar­lega um skýrsl­una í frétta­skýr­ingu á þriðju­dag.

Ekki vitað hver skrif­aði né hverjir komu að vinnu

Skýrslan var lögð fram á fundi fjár­laga­nefndar í gær. Þar fór ekki fram efn­is­leg umræða um skýrsl­una, en minni­hluti hennar hefur gagn­rýnt til­urð hennar harð­lega. Á meðal þess sem gagn­rýnt er að ekki liggur fyrir hver hafi skrifað skýrsl­una nér hverjir hafi komið að vinnu henn­ar. Þá hafi þeir sem ásak­anir hennar bein­ast að ekki fengið and­mæla­rétt í mál­inu. Komið hefur fram að Vig­dís og Guð­laugur Þór Þórð­ar­son, vara­for­maður fjár­laga­nefnd­ar, hafi greitt 90 þús­und króna kostnað vegna skýrsl­unnar úr eigin vasa. Sam­kvæmt upp­lýs­ingum frá Alþingi er það eins­dæmi að þing­menn geri slíkt.

Oddný Harð­ar­dótt­ir, for­maður Sam­fylk­ing­ar­inn­ar, hefur sagt að vinnu­brögðin sem við­höfð voru við gerð hennar hafi ekki verið til þess fallin að auka virð­ingu Alþing­is. 

Víglundur Þor­steins­son skrifar einnig grein um skýrsl­una í Morg­un­blaðið í dag þar sem hann gagn­rýnir frétta­flutn­ing og umræðu um hana. Þar segir hann að opin­ber­ast hafi „enn eina ferð­ina það „tvö­falda sið­ferði“ sem vinstri menn hér á landi og víðar starfa eftir þegar vind­ur­inn blæs í fang þeirra. Þeir velja sér þá gjarnan þægi­legri mælistikur en and­stæð­ing­un­um. Hún á enn vel við dæmi­sagan um bjálk­ann og flís­ina!“

Sendi tölvu­póst á blaða­mann Stund­ar­innar

Stundin greindi frá því í gær að Vig­dís hefði sent tölvu­póst á einn blaða­manna mið­ils­ins fyrir mis­tök sem átti að fara á Pál Jóhann Páls­son, þing­mann Fram­sókn­ar­flokks­ins og nefnd­ar­mann í fjár­laga­nefnd. Póst­ur­inn var sendur út á þriðju­dag. Í frétt Stund­ar­innar um póst­inn segir að hann varpi ljósi á ein­beittan ásetn­ing Vig­dísar til að koma í veg fyrir að þeir sem séu ásak­aðir í skýrsl­unni fái tæki­færi til að verja hendur sínar eða færa fram skýr­ingar á gjörðum sín­um. 

Í tölvu­póst­inum seg­ist Vig­dís hafa verið „skít­hrædd“ um að Stein­grímur J. Sig­fús­son, sem sætir alvar­leg­ustu ásök­un­unum í skýrslu nefnd­ar­inn­ar, fengi skýrsl­una í hend­ur, en til allrar ham­ingju hafi „þing­ið“ haldið trún­aði. Hún sagði jafn­fr­ant að það hafi veri „sta­tem­ent“ hjá henn­i og Guð­laugi Þór að leggja sjálf út fyrir kostn­að­inum vegna skýrsl­unn­ar.

Vig­dís gagn­rýndi frétta­flutn­ing fjöl­miðla af tölvu­póst­send­ing­unni harð­lega á sam­fé­lags­miðlum í gær og sagð­ist meðal ann­ars upp­lifa að „upp­lifa það að RÚV standi með SJS.“ Á sama vett­vangi kall­aði hún stund­ina fjöl­miðil kröfu­hafa. 



Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None