Sigmundur Davíð freistar þess að ná vopnum sínum

Mikil spenna er fyrir kjördæmisþing Framsóknarflokksins í Norðausturkjördæmi, sem hefst í dag. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður flokksins, freistar þess að fá endurnýjað umboð til forystu í kjördæminu, og um leið styrkja stöðu sína innan flokksins.

sigmundur davíð
Auglýsing

Í dag fer fram tvö­­falt kjör­­dæm­is­þing fram­­sókn­­ar­­manna í Norð­aust­­ur­­kjör­­dæmi og verður það sett klukkan 11:00 í Skjól­brekku í Mývatns­sveit.



Sig­­mund­ur Davíð Gunn­laugs­­son, for­maður Fram­­sókn­­ar­­flokks­ins er þar í fram­­boði, og freistar þess að fá umboð til að leiða flokk­inn áfram í kjör­dæm­inu. Þrír aðrir boðið sig fram í fyrsta sæti list­ans, þau Hösk­uldur Þór­halls­son, Þór­unn Egils­dóttir og Líneik Anna Sæv­ars­dótt­ir. Þá býður Hjálmar Bogi Haf­liða­son, vara­þing­mað­ur, sig fram í 2. til 4. sæti.

Kynn­ing­ar­blað með fram­bjóð­endum hefur verið tekið sam­an. Í því segir Sig­mundur Davíð að hann muni beita sér fyrir upp­bygg­ingu í kjör­dæmi, ef hann fái tæki­færi til þess. „Verði mér veitt umboð til að leiða fram­boð Fram­sókn­ar­flokks­ins í Norð­aust­ur­kjör­dæmi nú á 100 ára afmæl­is­ári flokks­ins mun ég í sam­ráð­i og sam­starfi við flokks­menn gera það að ­for­gangs­verk­efni nýs kjör­tíma­bils að efla ­upp­bygg­ingu um allt land. Hvort sem ég verð í meiri­hluta eða minni­hluta, for­sæt­is­ráð­herra eða ó­breyttur stjórn­ar­and­stöðu­þing­maður mun ég helga mig bar­áttu fyrir því að kjör­dæmið sem ­fóstr­aði mig sem stjórn­mála­mann fái notið krafta m­inna. Ég tók ákvörðun um að fara í stjórn­mál ­vegna þess að ég var sann­færður um að rót­tækra breyt­inga og skyn­sam­legra lausna væri þörf. Sjaldan hefur það átt jafn­vel við og nú. Ég vona að þið veitið mér tæki­færi til að halda þeirri bar­áttu áfram bæði á grund­velli þess árang­ur­s ­sem hefur náðst og á grund­velli ein­lægs vilja til­ að læra af reynsl­unni og gera enn betur á nýju ­kjör­tíma­bil­i,“ segir Sig­mundur Davíð í kynn­ing­ar­blað­inu.



Eins og kunn­ugt er sagði Sig­mundur Davíð af sér sem for­sæt­is­ráð­herra í kjöl­far Wintris-­máls­ins svo­kall­aða. 

Sigmundur Davíð hefur átt í vök að verjast, svo ekki sé meira sagt, eftir að Wintris-málið kom upp á yfirborðið.

Auglýsing

Und­an­farið hafa áhrifa­­menn í flokkn­um lagt til að Sig­­urður Ingi Jó­hanns­­son for­­sæt­is­ráð­herra taki við sem for­maður flokks­ins á kom­andi flokks­þingi. Þar á meðal er Guðni Ágústs­son, fyrr­ver­andi for­maður flokks­ins. Hösk­­uld­ur Þór­halls­­son, þing­maður flokks­ins og mót­fram­­bjóð­andi Sig­­mund­ar Dav­íðs í Norð­aust­­ur­­kjör­­dæmi, er einn þeirra sem hafa sagt rétt að Sig­­urður Ingi taki við.

Sam­kvæmt umfjöllun mbl.is, þá eru átján svæð­is­bundin félög Fram­sókn­ar­flokks­ins sem geti haft full­trúa á þing­inu, frá Fjalla­byggð í norðri til Djúpa­vogs í austri. 

Sam­­kvæmt Eyþóri Elí­as­­syni, for­­manni kjör­­stjórn­­ar Fram­­sókn­­ar­­flokks­ins í Norð­aust­­ur­­kjör­­dæmi eru um 370 á kjör­bréfi á þing­inu, að því er segir í umfjöllun mbl.is. Seg­ir hann að svo verði að koma í ljós hversu marg­ir mæti, en þingið fer fram á Skjól­brekku í Mý­vatns­­­sveit og er sett á morg­un klukk­an 11.

Stærstu aðild­­ar­­fé­lög­in eru Fram­­sókn­­ar­­fé­lag Ak­­ur­eyr­ar með 94 full­­trúa, Fram­­sókn­­ar­­fé­lag Hér­aðs og Borg­­ar­fjarðar með 54 full­­trúa og Fjarð­ar­byggð með 45 full­­trúa. Önnur félög eru nokkuð minn­i. 





Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None