Samfylkingin oftast allra fjarverandi við atkvæðagreiðslur

althingi_atkvaedagreidlsa.jpg
Auglýsing

Þing­menn Sam­fylk­ing­ar­innar eru oft­ast allra þing­manna fjar­ver­andi þegar atkvæða­greiðslur fara fram á Alþingi. Í 28,7 pró­sent til­fella þegar kosið er þá eru þing­menn flokks­ins með óút­skýrðar fjar­vist­ir. Vinstri græn og Sjálf­stæð­is­flokkur er með óút­skýrðar fjar­vistir í 16,6 og 16,5 pró­sent til­fella, Björt fram­tíð í 14,7 pró­sent, Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn í 13,9 pró­sent og Píratar í 10,2 pró­sent. Þetta kemur fram í Frétta­blað­inu í dag.

Ögmundur Jón­as­son, þing­maður Vinstri grænna, er oft­ast fjar­ver­andi við atkvæða­greiðslur en fast á hæla hans kemur Össur Skarp­héð­ins­son. Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins er sá stjórn­ar­þing­maður sem oft­ast er fjar­ver­andi. Þá kemur fram í úttekt blaðs­ins að karl­kyns þing­menn séu lat­ari við að mæta í atkvæða­greiðslur en kon­urnar sem sitja á þing­i. 

Helgi Hjörvar, þing­flokks­for­maður Sam­fylk­ing­ar­inn­ar, segir við Frétta­blaðið að nið­ur­staðan gefi flokknum til­efni til að fara yfir verk­lagið í þessum efnum og skerpa á því. Hann segir fjar­vist­irnar flestar eiga sér eðli­legar skýr­ingar og teng­ist þing­manna­starf­inu að ein­hverju leyt­i. „Ef við lítum á mig til dæmis þá má vænt­an­lega rekja nokkurn hluta þeirra til fram­boðs míns til for­manns ­flokks­ins. Það er hluti sem fylgir starf­in­u. ­Síðan má rekja ein­hverjar til veik­inda.[...]Það er mik­il­vægt að við séum alltaf á tánum og við höfum ekki verið það hvað atkvæða­greiðsl­ur varð­ar. Við mættum ver­a dug­legri að til­kynna fjar­vist­irn­ar fyrir fram,.“ 

Auglýsing

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None