Fimm í haldi lögreglu vegna sprengingarinnar í New York

Fimm voru handteknir á fjórða tímanum í nótt, og eru nú í haldi lögreglu vegna gruns um að hafa komið að skipulagningu sprengjuárásarinnar í Chelsea-hverfinu.

New York
Auglýsing

Sprengja sprakk í Chel­sea-hverf­inu á Man­hattan í New York rétt um níu ­leytið á laug­ar­dags­kvöld, að stað­ar­tíma, og særði hún 29. Eng­inn lést, og þykir það krafta­verki næst. Andrew Cuomo, rík­is­stjóri í New York, lýsti því yfir í gær að ­spreng­ingin væri hryðju­verk og málið yrði rann­sakað á þeim for­send­um. „Þeir sem bera ábyrgð á þess­ari hryðju­verka­árás verða dregnir fyrir dóm­stóla,“ sagð­i Cuomo á blaða­manna­fundi. Fimm eru nú í haldi lög­reglu, vegna gruns um að hafa komið að skipu­lagn­ingu sprengju­árás­ar­inn­ar.

Sprengi­bún­aður finnst í grennd

Skammt frá sprengju­svæð­inu fannst sprengi­bún­aður sem ekki hafði farið af stað. Önnur sprengja hefði því getað sprung­ið, og sagð­ist Cuomo ekki geta hugsað það til enda, ef það hefði gerst. Í raun væri það mikil heppn­i að eng­inn hefði látið líf­ið.

Auglýsing


Sprengjan sprakk í eða við ruslagám á 23. stræti, á Man­hatt­an. Í grennd eru vin­sælar götur þar sem er fjöldi veit­inga­húsa og versl­ana. Mik­il hræðsla greip um sig þegar sprengjan sprakk, en allt til­tækt lið lög­reglu var um­svifa­laust sent á vett­vang, og staðir rýmdir í grennd. Skömmu eft­ir ­spreng­ing­una var við­bún­aður auk­inn enn frekar, eftir að sprengjan í grennd, við 27. stræti, fannst.

Hér sést vettvangur sprengingarinnar, og síðan hvar sprengjubúnaður fannst í grennd. Myndin er fengin frá New York Times og birtist á Twitter-svæði blaðsins.

Ekki er vitað hverjir bera ábyrgð á árás­un­um, en allt bend­ir til þess að þeim hafi verið ætlað að valda eins miklu mann­tjóni og mögu­lega var hægt. Sprengj­urnar voru útbúnar þannig, að sprengju­brot færu sem víðast, að því er fram kom í máli Cuomo.

Fimm í haldi

Í nótt var stað­fest af lög­regl­unni í New York að fimm væru í haldi lög­reglu, vegna gruns um að hafa komið að skipu­lagn­ingu árásanna. Að öðru leyti verst lög­regla frétta.

Bill de Blasio borg­ar­stjóri vildi ekki tala um það með ákveðnum hætti, að um hryðju­verka­árás hefði verið að ræða, heldur ætti það eftir að skýr­ast eftir því ­sem rann­sókn máls­ins yrði fram­hald­ið. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent
None