Nike Free bjargaði íþróttavörurisanum

Ótrúlegar sölutölur Nike sýna að það er Nike Free skólínan sem hefur skipt sköpum fyrir þetta stærsta íþróttavörumerki heimsins.

Nikefree
Auglýsing

Banda­ríski íþrótta­vöruris­inn Nike hefur átt góðu gengi að fagna á und­an­förnum árum, og þar hefur Nike Free skólínan verið í lyk­il­hlut­verki. Í upp­hafi var skór­inn hugs­aður sem góður göngu­skór í borg­um, einkum fyrir kon­ur. En með fleiri útgáf­um, og útfærsl­um, var skór­inn gerður að ­flagg­skipi ris­anans á alþjóð­legum mörk­uð­um.

Í Banda­ríkj­unum starfa 62 þús­und manns hjá Nike og heild­ar­tekjur fyr­ir­tæk­is­ins í fyrra námu 30,6 millj­örðum Banda­ríkja­dala, eða ­sem nemur 3.600 millj­örðum króna.

Í Banda­ríkj­unum er staða Nike gríð­ar­lega sterk, en 13,7 millj­arðar Banda­ríkja­dala koma inn í sjóði fyr­ir­tæk­is­ins frá Banda­ríkj­un­um.

Auglýsing

Hér sjást sölutölur frá Nike, og hvernig þær skiptast niður á markaði fyrirtækisins. Myndin birtist í skýrslu Statista, greiningarvefs um viðskipti.

Og þar eru skór í aðal­hlut­verki. Í fyrra keypt­u ­Banda­ríkja­menn og ferða­menn sem heim­sækja land­ið, skó fyrir 8,5 millj­arða Banda­ríkja­dala, eða sem nemur um 1.100 millj­örðum króna.

Búist er við því að þetta ár toppi fyrri vaxt­ar­ár. Árið 2010 ­seld­ust skór fyr­ir­tæk­is­ins fyrir tæp­lega 5 millj­arða Banda­ríkja­dala í Banda­ríkj­un­um, og vöxt­ur­inn hefur verið mik­ill.

Vöxt­ur­inn hefur nær alfarið verið í skóm, og einkum og sér í lagi Nike Free. Fyrsta línan kom fram árið 2005 og svo aftur 2007. En það var ekki fyrr en árið 2009, og svo aftur 2013, sem sölu­töl­urnar tóku loks­ins mik­inn kipp. Skær­lituð útgáfa af skónum seld­ist í bíl­förm­um, og gerir enn­þá.



Stjórnefndur Nike hafa sagt að Nike Free skór­inn hafa að mörgu leyti bjargað fyr­ir­tæk­inu, enda gekk það í gegnum erf­ið­leika á árun­um 2005 til 2009, og náði ekki sýna mik­inn sölu­vöxt milli ára. Með end­ur­fæð­ingu skólín­unnar árið 2009 hófst mikið vaxt­ar­skeið sem virð­ist lík­legt til að vara árum saman í við­bót.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiErlent
None