7DM_2118_raw_0590.JPG
Auglýsing

Af dómi Hæsta­réttar í flug­vall­ar­mál­inu sést að fyrir hendi sé gildur samn­ingur milli ríkis og Reykja­vík­ur­borgar um að loka skuli flug­braut 06/24 á Reykja­vík­ur­flug­velli, svo­kall­aðri neyð­ar­braut. Hafi aðilar sem eru bygg­ing­ar­fram­kvæmdum á svæð­inu við braut­ina gert samn­inga við Reykja­vík­ur­borg og ráð­staf­anir sem byggj­ast á þeirri for­sendu að þessi samn­ingur standi og hafa þeir rétt­mætar vænt­ingar til þess að hún breyt­ist ekki má ætla að skaða­bóta­skylda stjórn­valda skap­ist gagn­vart þeim, ákveði þau síðar að hætta við lokun neyð­ar­braut­ar­inn­ar. Þeir þurfa þó að sýna fram á það fjár­hags­lega tjón sem slík ákvörðun skap­ar. Þetta kemur fram í svari Bjargar Thoraren­sen, pró­fess­ors við laga­deild Háskóla Íslands, á stað­reynda­vakt Vís­inda­vefs skól­ans.

Les­andi hafði spurt Vís­inda­vef­inn hvort stjórn­völd gætu raun­veru­lega tekið lokun neyð­ar­braut­ar­innar á Reykja­vík­ur­flug­velli til baka eftir kosn­ing­ar.  

Svarið í dómi Hæsta­réttar

Í svari Bjargar segir að svar spurn­ing­ar­innar sé í meg­in­at­riðum að finna í dómi Hæsta­réttar Íslands sem gekk 9. júní síð­ast­lið­inn í máli sem Reykja­vík­ur­borg höfð­aði gegn íslenska rík­inu til við­ur­kenn­ingar á því að inn­an­rík­is­ráð­herra yrði gert að loka NA/SV-flug­braut á Reykja­vík­ur­flug­velli í sam­ræmi við samn­ing milli aðila þess efnis sem byggð­ist á til­greindu skjali und­ir­rit­uðu af þáver­andi borg­ar­stjóra og inn­an­rík­is­ráð­herra.

Auglýsing

Dóm­ur­inn taldi að þegar efni skjals­ins væri túlkað væri hafið yfir skyn­sam­legan vafa að með því hefði inn­an­rík­is­ráð­herra gengið undir þá skuld­bind­ingu að til­kynna um lokun flug­braut­ar­innar sam­tímis því að nýtt deiliskipu­lag fyrir flug­vall­ar­svæðið yrði aug­lýst og að þá skyldi jafn­framt end­ur­skoða gild­andi skipu­lags­reglur fyrir flug­völl­inn til sam­ræm­is. Þá yrði ekki dregin önnur ályktun en sú að stjórn­valds­á­kvörðun um lokun flug­braut­ar­innar hefði þegar verið tek­in.

Í dómnum var enn fremur stað­fest að inn­an­rík­is­ráð­herra var bær til að takast  á hendur slíkar skuld­bind­ingar gagn­vart borg­inni og að Reykja­vík­ur­borg hefði for­ræði á þeim mál­efnum sem sam­komu­lagið varð­andi, með vísun í 78. grein stjórn­ar­skrár Íslands um sjálf­ræði sveit­ar­fé­laga. Auk þess hefði borgin þegar efnt þær skyldur sem hvíldu á henni sam­kvæmt sam­komu­lag­inu. Krafa Reykja­vík­ur­borgar um að rík­inu væri skylt að loka flug­braut­inni laut að því að efna ein­staka afmark­aða samn­ings­skuld­bind­ingu sem hefði verið van­efnd.

Ekki allar ákvarð­anir aft­ur­kall­an­legar

Í svari Bjargar segir að ekki sé hægt að gefa sér að allar opin­berar ákvarð­anir séu aft­ur­kall­an­legar enda víst að oft sé þar fjallað um rétt­indi og skyldur ein­stak­linga og lög­að­ila, sem ekki verða aft­ur­kall­aðar nema ákveðin laga­leg skil­yrði séu upp­fyllt. „Af dómi Hæsta­réttar í flug­vall­ar­mál­inu verður ályktað að fyrir hendi sé gildur samn­ingur milli rík­is­ins og borg­ar­innar um að ríkið skuli loka umræddri flug­braut. Hafi aðilar sem eru bygg­ing­ar­fram­kvæmdum á svæð­inu gert samn­inga við Reykja­vík­ur­borg og ráð­staf­anir sem byggj­ast á þeirri for­sendu að þessi samn­ingur standi og hafi þeir rétt­mætar vænt­ingar til þess að hún breyt­ist ekki má ætla að skaða­bóta­skylda stjórn­valda skap­ist gagn­vart þeim, ákveði þau síðar að hætta við lokun neyð­ar­braut­ar­innar ef þeir geta sýnt fram á fjár­hags­legt tjón sem slík ákvörðun skap­ar.“

Hægt er að lesa svar stað­reynda­vaktar Vís­inda­vefs­ins í heild sinni hér.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None