bahama
Auglýsing

Fimm Íslend­ingar nýttu sér aflands­fé­lög á Baham­a-eyj­um. Þeir eiga allir heim­ils­festi utan Íslands. Þetta má lesa úr gögnun sem þýska blað­ið  Südd­eutche Zeit­ung hefur undir höndum og alþjóð­leg sam­tök rann­sókn­ar­blaða­manna, ICIJ, hafa unnið úr í sam­starfi við 110 fjöl­miðla víða um heim. Á meðal þeirra sem vinna úr gögn­unum er Reykja­vik Media í sam­starfi við Morg­un­út­varpið á Rás 2. Frá þessu er greint á vef RÚV.

Þar segir að ekki sé um jafn ítar­leg og Pana­ma-­gögnin svoköll­uðu, sem voru opin­beruð í apr­íl. Þar var um að ræða leka frá lög­fræði­stof­unni Mossack Fon­seca, sem sér­hæfði sig í upp­setn­ingu aflands­fé­laga og þjón­ustu við þau. Í þeim kom meðal ann­ars fram að hund­ruð Íslend­inga ættu mörg hund­ruð félög í þekktum skatta­skjól­um. Á meðal þeirra voru íslenskir ráða­menn og þekktir við­skipta­for­kólfar. Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, þáver­andi for­sæt­is­ráð­herra, þurfti að segja af sér emb­ætti eftir að upp­lýst var um til­urð félag hans og eig­in­konu hans, Wintris Inc., hefði heim­il­is­festi á Tortóla-eyju, geymdi þar á annað millj­arð króna í eignum og væri kröfu­hafi í bú föllnu bank­anna. 

Í frétt RÚV segir að íslenskir bankar hafi ekki verið jafn umsvifa­miklir á Bahama og þeir voru á Tortóla, höf­uð­borg Bresku jóm­frú­areyj­anna. Gögnin sýni hins vegar að aflands­þjón­usta sem Íslend­ingar hafa not­ast við á síð­ustu árum og ára­tugum er ekki bundin við ein­staka fyr­ir­tæki, banka eða lög­manns­stof­ur. Því stað­festi Baham­a-­lek­inn þann grun að aflands­við­skipti Íslend­inga séu enn aðeins upp­lýst að hluta til. 

Auglýsing

Stærsta nafnið sem er að finna í Baham­a-skjöl­unum er nafn ­fyrr­ver­andi sam­keppn­is­stjóra Evr­ópu­sam­bands­ins, Neelie Kroes. Hún var valda­mikil og við­skipta­tíma­ritið For­bes valdi hana fimm sinnum á lista yfir 100 áhrifa­mestu konur heims. Þá er nafn Amber Rudd, inn­an­rík­is­ráð­herra Bret­lands, einnig að finna í þeim.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None