Guðni Th Jóhannesson
Auglýsing

Guðni Th. Jóhann­es­son, for­seti Íslands, hefur skrifað undir búvöru­lögin og þar með hafa nýir búvöru­samn­ingar öðl­ast gildi. Und­ir­skrifta­söfnun sem hvatti Guðna Th. til að synja lög­unum und­ir­rit­unar og vísa þeim þess í stað í þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu var hrint af stað eftir að lögin voru sam­þykkt á Alþingi. Til stóð að safna 15 þús­und und­ir­skriftum en í gær voru þær undir 4.500. Frá þessu er greint í Morg­un­blað­inu í dag.

Búvöru­samn­ing­arnir voru sam­þykktir á Alþingi 13. sept­em­ber. Þeir munu kosta rík­­is­­sjóð yfir 130 millj­­arða króna á næstu tíu árum hið minnsta. Sú tala gæti hækkað þar sem samn­ing­­arnir eru tvö­­falt verð­­tryggð­­ir. Samn­ing­­arnir hafa verið harð­­lega gagn­rýndir frá því að þeir voru und­ir­­rit­aðir í febr­­úar af núver­andi leið­­togum rík­­is­­stjórn­­­ar­inn­­ar. Gagn­rýnin snýr helst að því að hags­munir bænda og þeirra fyr­ir­tækja sem njóta góðs að land­­bún­­að­­ar­­kerfi Íslend­inga hafi verið teknir fram yfir hags­muni neyt­enda og skatt­greið­enda við gerð þeirra, sér­­stak­­lega vegna þess mikla kostn­aðar sem fylgir þeim og að þeir eiga að gilda til tíu ára, eða í tvö og hálft kjör­­tíma­bil.

Auglýsing

Þrátt fyrir háværa and­­stöðu og stór orð sem látin hafa verið falla í ræð­u­stólum Alþingis um þá voru samn­ing­­arnir sam­­þykkt­­ir. En ein­ungis 19 þing­­menn, eða 30 pró­­sent allra þing­­manna, greiddu atkvæði með þeim. Sjö sögðu nei en aðrir sátu hjá eða voru ekki við­staddir þessa gríð­­ar­­lega mik­il­vægu og bind­andi atkvæða­greiðslu sem mun móta eitt af lyk­il­­kerfum íslensks sam­­fé­lags, hið rík­­is­­styrkta land­­bún­­að­­ar­­kerfi, næsta ára­tug­inn.

End­ur­skoð­un­ar­á­kvæði var sett inn í samn­ing­anna eftir aðra umræðu sem segir að skipa eigi sam­ráðs­hóp um end­­ur­­skoðun á samn­ing­un­um. Hann á að skila nið­ur­stöðu sinni eftir þrjú ár, eða fyrir árs­lok 2019. End­ur­skoð­unin mun hins vegar ekki öðl­ast gildi nema að bændur sam­þykki hana í atkvæða­greiðslu. Hafni þeir henni mun tíu ára samn­ing­ur­inn gilda áfram.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None