Vigdís Finnbogadóttir fékk einnig aðstoð frá stjórnvöldum eftir að hún hætti

Kostnaður vegna starfsmanns sem mun sinna verkefnum fyrir Ólaf Ragnar Grímsson út næsta ár er áætlaður tíu milljónir króna.
Kostnaður vegna starfsmanns sem mun sinna verkefnum fyrir Ólaf Ragnar Grímsson út næsta ár er áætlaður tíu milljónir króna.
Auglýsing

Það var ákvörðun rík­is­stjórnar Íslands að bjóða Ólafi Ragn­ari Gríms­syni, fyrr­ver­andi for­seta Íslands, aðstoð og þjón­ustu vegna ýmissa verk­efna sem áfram verða á hans borði. Ákvörð­unin á sér for­dæmi því Vig­dís Finn­boga­dóttir fékk einnig tíma­bundna aðstoð af hálfu stjórn­valda þegar hún lét af for­seta­störf­um.

Sú aðstoð sem Ólafur Ragnar mun þiggja felst í því að starfs­maður utan­rík­is­ráðu­neyt­is­ins mun sinna verk­efnum fyrir Ólaf Ragnar í allt að 50 pró­sent starfi. Áætluð útgjöld vegna þessa eru tíu millj­ónir króna á árunum 2016 og 2017. Þetta kemur fram í frum­varpi til fjár­auka­laga sem kynnt var í vik­unni.

Mun m.a. sinna loft­lags- og orku­málum

Utan­rík­is­ráðu­neytið segir í svari við fyr­ir­spurn Kjarn­ans um málið að ákveðið hafi verið að vista þetta starf í ráðu­neyt­inu vegna alþjóða­tengsla. Starfs­maður sem utan­rík­is­ráðu­neytið leggur til verður tengiliður vegna hluta þeirra verk­efna sem Ólafur Ragnar kemur til með að sinna, þar með talið loft­lags- og orku­mál­um. Við­kom­andi starfs­maður mun einnig sinna fyr­ir­spurn­um, boðum og öðru sem stjórn­völdum ber­ast en bein­ast að þjóð­höfð­ingj­anum fyrr­ver­andi.

Auglýsing

Í svari utan­rík­is­ráðu­neyt­is­ins er bent á að ákvörð­unin eigi sér for­dæmi. Vig­dís Finn­boga­dóttir hafi einnig fengið tíma­bundna aðstoð af hálfu stjórn­valda eftir að hún lét af emb­ætti árið 1996.

Ólafur Ragnar lét af emb­ætti í sumar eftir að hafa setið á for­seta­stóli í tvo ára­tugi. Við emb­ætti for­seta Íslands tók Guðni Th. Jóhann­es­son.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None