Ráðuneytið vissi að LOGOS hefði unnið fyrir Landsnet

Ragnheiður Elín Árnadóttir er iðnaðar- og viðskiptaráðherra.
Ragnheiður Elín Árnadóttir er iðnaðar- og viðskiptaráðherra.
Auglýsing

LOGOS lög­fræði­þjón­usta, sem vann lög­fræði­á­lit fyrir iðn­að­ar- og við­skipta­ráðu­neytið vegna frum­varps um að heim­ila Lands­neti að leggja raf­línur að iðn­að­ar­svæð­inu á Bakka, hefur einnig unnið umtals­vert fyrir Lands­net á und­an­förnum árum. Ráðu­neytið seg­ist hafa vitað af því að LOGOS hafi unnið fyrir Lands­net en að það telji ekki að um hags­muna­á­rekstur sé að ræða.

Þetta kemur fram í svari iðn­að­ar- og við­skipta­ráðu­neyt­is­ins við fyr­ir­spurn Kjarn­ans um mál­ið.

Hörð gagn­rýni stjórn­ar­and­stöðu

Úrskurð­ar­nefnd umhverf­is- og auð­linda­mála stöðv­aði fram­kvæmdir vegna lagn­ingu á raf­línu frá Þeista­reykjum og Kröflu­svæð­inu að iðn­að­ar­svæð­inu á Bakka í ágúst. Ástæðan var kæra Land­verndar vegna máls­ins. Nið­ur­staða nefnd­ar­innar á að liggja fyrir um miðjan októ­ber.

Auglýsing

Það þótti hins vegar of langur tími til að bíða eftir slíkri nið­ur­stöðu og því ákvað rík­is­stjórnin að leggja fram frum­varp um að kæru­ferlið yrði stöðvað og fram­kvæmdum áfram­hald­ið. Það frum­varp var afgreitt úr atvinnu­vega­nefnd í vik­unni.

Stjórn­ar­and­staðan hefur gagn­rýnt frum­varpið harð­lega. Svan­dís Svav­ars­dótt­ir, þing­flokks­for­maður Vinstri grænna og fyrr­ver­andi umhverf­is­ráð­herra, sagði til að mynda á Alþingi á fimmtu­dag að hún teldi að frum­varpið brjóti gegn stjórn­ar­skrá Íslands og alþjóð­legum skuld­bind­ing­um. Þar kom einnig fram að hún gefi lítið fyrir lög­skýr­ingar rík­is­stjórn­ar­innar í mál­inu.

Ragn­heiður Elín Árna­dótt­ir, iðn­að­ar- og við­skipta­ráð­herra, svar­aði því til að við und­ir­bún­ing máls­ins hafi verið fengið utan­að­kom­andi lög­fræði­á­lit frá „einni stærstu lög­fræði­stofu hér­lend­is, LOGOS.“

„Ragn­heiður Elín sagði að „sam­kvæmt þeim upp­lýs­ingum og álitum sem við öfl­uðum okkur þá er þarna ekki um mögu­leg brot á þessum samn­ings­skuld­bind­ing­um. Þessi lög­fræði­stofa tók enn fremur að sér að skoða þetta með til­liti til stjórn­ar­skrár­innar og komst að sömu nið­ur­stöðu, að þarna væri ekki verið að brjóta stjórn­ar­skrá.“

Vissu af vinnu LOGOS fyrir Lands­net

LOGOS lög­manns­þjón­usta hefur veitt Lands­neti, því fyr­ir­tæki sem er að leggja umræddar raf­línur að Bakka, víð­tæka ráð­gjöf og lög­fræði­þjón­ustu á und­an­förnum árum. Á heima­síð­unni Legal500 segir meðal ann­ars í texta frá LOGOS að stofan hafi verið ráð­gjafi Lands­nets við kaup og lagn­ingu neð­an­jarð­ar­raf­lína.

Þá varði lög­maður frá LOGOS Lands­net í máli sem sner­ist um raf­orku­af­hend­ingufyrir Hæsta­rétti í sum­ar.

Kjarn­inn beindi fyr­ir­spurn til iðn­að­ar- og  við­skipta­ráðu­neyt­is­ins vegna þess að LOGOS hafi var fengið til að vinna lög­fræði­matið sem er fylgi­skjal með frum­varp­inu sem heim­ilar Lands­neti að halda áfram vinnu við að leggja raf­línur að iðn­að­ar­svæð­inu Bakka.

Í svari ráðu­neyt­is­ins kemur fram að það hafi vitað að LOGOS hafi veitt Lands­neti ýmsa lög­fræði­þjón­ustu á und­an­förnum árum og til­tekið er að aðrar lög­fræði­stofur hafi einnig unnið verk­efni fyrir Lands­net. „Ráðu­neytið hefur áður leitað til LOGOS með ýmis lög­fræði­leg úrlausn­ar­efni og ber fullt traust til fag­legra vinnu­bragða hjá LOGOS og hlut­lausrar lög­fræði­ráð­gjaf­ar. LOGOS er stærsta lög­manns­stofa lands­ins og hefur um langt skeið unnið verk­efni fyrir fjölda fyr­ir­tækja og stofn­ana í land­inu. Hin lög­fræði­lega álits­gerð LOGOS sneri að mati á stjórn­skipu­legum atrið­um, aft­ur­virkni og mati á alþjóð­legum samn­ing­um. Því þurfti lög­mann­stofu með breiða þekk­ingu og sér­fróðra aðila á sínum snærum til að taka slíkt verk­efni að sér og að feng­inni reynslu treysti ráðu­neytið LOGOS til að taka slíkt mat að sér.

Í svar­inu segir enn fremur að full­trúar LOGOS hafi verið kall­aðir á fund atvinnu­vega­nefndar til að fara yfir lög­fræði­á­lit­ið. Þar hafi þeir verið sér­stak­lega spurðir út í mögu­lega hags­muna­á­rekstra við gerð mats­ins vegna þess að LOGOS hefði unnið fyrir Lands­net. „Á fund­inum kom fram að ávallt sé gætt að því í innri verk­ferlum hjá LOGOS að hags­munir skarist ekki og að lög­fræði­ráð­gjöf sé ávallt hlut­laus og fag­leg. Í þessu til­viki hafi þannig t.d. sá lög­maður og eig­andi hjá LOGOS sem var ábyrgur fyrir umræddu lög­fræði­á­liti ekki komið að verk­efnum fyrir Lands­net áður.



Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None