Landssamband veiðifélaga hefur farið fram á það við bæði sjávarútvegsráðherra og umhverfisráðherra að fram fari óháð opinber rannsókn á því hvers vegna og hvernig regnbogasilungur hafi sloppið í miklu magni á Vestfjörðum sem leitt hefur til þess að regnbogasilungur hefur veiðist um allt norðan- og vestanvert land síðustu vikur og mánuði.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Landssambandinu. „Staðfest hefur verið að regnbogasilungur hefur veiðst í ám við Húnaflóa, í ám á Vestfjörðum og allt suður til Faxaflóa, í Vatnsdalsá, Haffjarðará, Hítará á Mýrum auk fleiri vatnasvæða og það í nokkru magni. Engu að síður hefur ekkert fiskeldisfyrirtæki tilkynnt um slysasleppingar úr sjókvíaeldi sínu, sem fyrirtækjunum er þó skylt að gera lögum samkvæmt,“ segir í tilkynningunni.
Er þess krafist að stjórnvöld láti fara fram óháða og opinbera rannsókn á málinu og jafnframt gerir Landssambandið kröfu um að skoðað verði hvort eftirlit með starfsemi sjókvíaeldisfyrirtækja sé fullnægjandi og standist kröfur.
„Ljóst er að um umhverfisslys er að ræða og útbreiðsla regnbogasilungs um allt norðan – og vestanvert land er einungis fyrirboði annars umhverfisslyss sem verði með vaxandi laxeldi í sjókvím. Slíkt umhverfisslys er óafturkræft og því mikilvægt að tekið sé í taumana strax,“ segir í tilkynningunni.