Már Guðmundsson seðlabankastjóri situr í peningastefnunefnd.
Már Guðmundsson seðlabankastjóri situr í peningastefnunefnd.
Auglýsing

Pen­inga­stefnu­nefnd Seðla­banka Íslands hefur ákveðið að halda meg­in­vöxtum sínum óbreytt­um. Þeir verða því áfram 5,25 pró­sent. Þetta kemur fram í yfir­lýs­ingu hennarsem birt var í morg­un. Það rök­styður hún m.a. með því að verð­bólga hafi mælst tölu­vert hærri í sept­em­ber en í ágúst, en það gerði hún vegna mis­taka Hag­stofu Íslands í útreikn­ingi vísi­tölu neyslu­verðs. Mis­tökin gerðu það að verkum að verð­bólga var van­metin í nokkra mán­uði, frá mars og fram í ágúst.

Í yfir­lýs­ingu pen­inga­stefnu­nefndar segir að hækkun á verð­bólgu í sept­em­ber end­ur­spegli að hluta „leið­rétt­ingu á skekkju í verð­bólgu­mæl­ingum Hag­stofu Íslands á tíma­bil­inu mars til ágúst sl. Ofspá Seðla­bank­ans á verð­bólgu fram eftir ári var því í raun minni en áður var talið. Verð­bólgu­horfur hafa þó lík­lega lítið breyst frá þeirri spá sem bank­inn birti í ágúst enda hefur gengi krón­unnar hækkað enn frekar og verð­bólgu­vænt­ingar eru áfram við verð­bólgu­mark­mið­ið.

Líkur á vax­andi spennu í þjóð­ar­bú­skapnum og óvissa í tengslum við losun fjár­magns­hafta kalla á var­færni við ákvörðun vaxta. Aðhalds­stig pen­inga­stefn­unnar á kom­andi miss­erum mun því ráð­ast af efna­hags­þró­un­inni og því hvernig tekst til við losun fjár­magns­hafta.“

Auglýsing

Vextir lækk­aðir í ágúst

Pen­inga­­stefn­u­­nefnd Seðla­­banka Íslands lækk­aði vexti bank­ans um 0,5 pró­­sent­ur í lok ágúst. Meg­in­vextir bank­ans fóru þá úr 5,75 pró­­sentum í 5,25 pró­­sent. Meg­in­vextir bank­ans höfðu hald­ist óbreyttir frá því að þeir voru hækk­­aðir í 5,75 pró­­sent í nóv­­em­ber 2015. 

Seðla­­bank­inn hafði þá legið undir ámæli fyrir að lækka ekki vexti í ljósi þess að verð­­bólga hafði nú verið undir verð­­bólg­u­­mark­miði hans síðan í febr­­úar 2014. Ákvörðun pen­inga­­stefn­u­­nefnd­­ar­innar hafði þau áhrif að breyt­i­­legir vextir við­­skipta­vina fjár­­­mála­­stofn­anna lækk­uðu og þau kjör sem þær bjóða nýjum lán­tak­end­­um. Seðla­bank­inn rök­studdi ákörðun sína með því að verð­bólgu­spár hefðu batn­að. 

Og flestir grein­ing­ar­að­ilar bjugg­ust við að vaxta­lækk­un­ar­skeið væri haf­ið. Af því varð þó ekki.

Mis­tök Hag­stof­unnar

Í síð­ustu viku var greint frá því því að hjá Hag­­stofu Íslands hefði reiknuð húsa­­leiga verið van­­metin við útreikn­ingi vísi­­tölu neyslu­verðs, sem mælir verð­­bólgu. Þessi mis­­tök voru leið­rétt með þeim afleið­ingum að vísi­talan hækk­­aði um tæp 0,5 pró­­sent á milli mán­aða og langt umfram allar opin­berar spár. Þetta þýddi líka að 12 mán­aða verð­­bólga hefur verið veru­­lega van­­metin und­an­farið hálft ár. Árs­verð­­bólga, sem var 0,9 pró­­sent í ágúst, mælist því 1,8 pró­­sent í sept­­em­ber. 

Mis­­tök Hag­­stof­unnar hafa víð­tæk áhrif. Þeir sem tekið hafa ný verð­­tryggð hús­næð­is­lán á því tíma­bili sem þau ná yfir munu til að mynda þurfa að greiða upp­­safn­aðar verð­bætur af lánum sín­­um. Þeir sem tóku lán í sept­­em­ber­mán­uði munu auk sjá þau hækka skarpar en ann­­ars hefði orð­ið. Þeir sem ætla sér að taka verð­­tryggð hús­næð­is­lán þessa dag­anna ættu að bíða fram í nóv­­em­ber hið minnsta svo þeir þurfi ekki að greiða upp­­safn­aðar verð­bætur tíma­bils sem þeir voru ekki með lán, vegna mis­­­taka Hag­­stof­unn­­ar. Þá mun húsa­­leiga þeirra sem er bundin við þróun vísi­­tölu neyslu­verðs hækka um kom­andi mán­að­­ar­­mót. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None