Eggert Skúlason
Auglýsing

Egg­ert Skúla­son, fyrr­ver­andi rit­stjóri DV, hefur verið ráð­inn sem kosn­inga­stjóri Fram­sókn­ar­flokks­ins í báðum Reykja­vík­ur­kjör­dæm­un­um. Frá þessu greinir hann í stöðu­upp­færslu á Face­book í gær­kvöldi. Þar seg­ist hann hafa tekið að sér stórt og spenn­andi verk­efni sem hann hlakki til að takast á við. „Ég hef áður komið að kosn­inga­bar­áttu fyrir Sjálf­stæð­is­flokk og Fram­sókn og einnig unnið með ein­stak­lingum í Sam­fylk­ing­unni. En þetta verður fjör og stuttur tími. Hlakka til að takast á við þetta verk­efni. Eða eins og vinur minn sagði. "Þú ræðst aldrei á garð­inn þar sem hann er lægst­ur."

Egg­ert hætti sem rit­stjóri DV í byrjun júní á þessu ári. Hann sagði þá að það væri sam­eig­in­­leg ákvörðun hans og eig­enda Vef­­press­un­­ar, útgáfu­­fé­lags DV, að hann hætti sem rit­­stjóri. Eftir sum­­­ar­frí myndi hann koma til með að vinna að verk­efnum fyrir útgáf­una, en það væri ekki alveg ljóst hvaða verk­efni það verð­i. 

Auglýsing

Fram­sókn­ar­tengsl „hel­bert kjaftæði“

Egg­ert var ráð­inn rit­­stjóri DV ásamt Kol­brúnu Berg­þór­s­dóttur í lok árs 2014. Það gerð­ist í kjöl­far þess að Vef­­pressan eign­að­ist blað­ið. Egg­ert Skúla­­­son starf­aði á árum áður við fjöl­mið­l­un, meðal ann­­­ars á Stöð 2. Áður en hann varð rit­­stjóri DV hafði hann rekið eigið almanna­­­tengsla­­­fyr­ir­tæki og meðal ann­­­ars starfað fyrir kröf­u­hafa föllnu bank­ana. Fyr­ir­tæki Egg­erts. Franca ehf., var líka ráðið til að gera úttekt á DV eftir að nýir eig­endur tóku við fjöl­mið­l­inum haustið 2014. Starfs­­­menn DV sendu í kjöl­farið frá sér yfir­­­lýs­ingu þar sem þeir sögðu úttekt­ina illa unna og að hún virt­ist að mestu byggja á skoð­unum úttekt­­­ar­höf­unda sjálfra. 

Eftir að Egg­ert var ráð­inn rit­stjóri voru uppi ásak­anir um sterk tengsl hans við Fram­sókn­ar­flokk­inn. Egg­ert skrif­aði stöðu­upp­færslu á Face­book 5. jan­úar 2015 þar sem hann sagði m.a. að hann vildi fá að vita hver hefði skráð hann í Fram­sókn­ar­flokk­inn. 

Í sam­tali við Vísi sama dag sagði Egg­ert að hann kann­að­ist ekk­ert við að vera skráður í Fram­sókn­ar­flokk­inn. „Ef ég ætti að velja ein­hver orð fyrir það myndi ég segja: Hel­bert kjaftæð­i.“

Björn Ingi Hrafns­­son, fyrr­ver­andi borg­ar­full­trúi Fram­sókn­ar­flokks­ins, er útgef­andi DV. Félag í eigu Björns Inga tók nýverið yfir­ ­eign­­­ar­hluti Sig­­­urðar G. Guð­jóns­­­sonar hæsta­rétt­­­ar­lög­­­manns og félags­­­ins Tryggva ­Geirs ehf., í eigu Þor­­­steins Guðn­­a­­­son­­­ar, í Press­unni ehf., aðal­­­eig­anda DV og fleiri miðla. Félag­ið, sem heitir Kring­u­­­eignir ehf., er nú skráð fyrir 31,85 ­pró­­­sent hlut í Press­unni. Önnur félög sem eru í eigu Björns Inga og Arn­­­ar­s Æg­is­­­son­­­ar, fram­­­kvæmda­­­stjóra Press­unn­­­ar, eiga 39,15 pró­­­sent í fyr­ir­tæk­inu. Því eiga félög í eigu Björns Inga nú 71 pró­­­sent hlut í Press­unni, sem á 84,23 ­pró­­­sent hlut í DV. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None