Segir Viðreisn hafa afritað stefnuskrá Bjartrar framtíðar

Björt Ólafsdóttir
Auglýsing

Björt Ólafs­dótt­ir, þing­maður Bjartrar fram­tíð­ar, segir að stjórn­mála­flokk­ur­inn Við­reisn hafi afritað stefnu­skrá flokks síns. Hún spyr einnig hver það er sem fjár­magni kosn­inga­her­ferð Við­reisnar og gagn­rýnir Þor­stein Víglunds­son, fram­bjóð­anda Við­reisn­ar, fyrir að tala um „al­manna­hags­muni fram yfir sér­hags­muni“ þegar hann hafi bein­línis verið á launa­skrá við að sinna sér­hags­munum sem fram­kvæmda­stjóri Samáls og síðar fram­kvæmda­stjóri Sam­taka Atvinnu­lífs­ins áður en hann ákvað að hefja stjórn­mála­þátt­töku. Þá fer hún fram á að Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dótt­ir, odd­viti Við­reisnar í Suð­vest­ur­kjör­dæmi, útskýri hvernig hún hafi ekki verið að sinna sér­hags­munum umfram ann­arra „þegar hún sem ráð­herra sinnti mál­efnum Kaup­þings þar sem fjöl­skylda hennar fékk nið­ur­felld 2 millj­arða króna kúlu­lán.“ Þetta kemur fram í stöðu­upp­færslu Bjartar á Face­book sem birt var í dag.



Auglýsing

Í færsl­unni bregst Björt við stöðu­upp­færslu Þor­steins frá því í gær, þar sem hann sagði: „Ég hef orðið var við að óprút­tnir keppi­nautar okkar í Við­reisn hafa gert til­raun til að stela ein­kenn­is­orðum okk­ar. Við því er það eitt að segja að fólki ber að var­ast lélegar eft­ir­lík­ing­ar, sama hversu bjartri fram­tíð er lof­að.“

Björt segir að þegar Við­reisn hafi afritað stefnu­skrá Bjartrar fram­tíðar sem sam­þykkt hafi verið fyrir fjórum árum hafi flokks­menn ekki sagt neitt annað en að gleði­legt væri að fleiri legð­ust á árarnar við að koma mik­il­vægum málum á fram­færi. Þeir sem starfi í Bjartri fram­tíð hafi ekki litið á sig sem atvinnu­stjórn­mála­menn eða flokk­inn sem hags­muna­afl sem hverf­ist um þau sjálf, heldur hafi mál­efnin skipt öllu. Við ávirð­ingum Þor­steins segir hún: „Björt Fram­tíð var stofnuð árið 2012. Til þess að fjár­magna kosn­inga­bar­áttu okkar árið 2013 lagði þáver­andi for­maður flokks­ins hús fjöl­skyldu sinnar að veði, svo við hefðum fé til að prenta lág­marks bæk­linga og kynn­inga­efni. Þetta var okkar helsta kost­un­ar­leið. Við áttum ekki, og vildum ekki hafa stóra bak­hjarla með sína sér­hags­muni til að kosta okkar fram­boð.

Í þessum kosn­ingum hefur Björt Fram­tíð með­vitað tekið ákvörðun um að taka ekki við neinum pen­ingum frá lög­að­il­um. Við tökum ekki lán fyrir kosn­inga­bar­átt­unni en eigum 13. 5 millj­ónir inni á banka­reikn­ingi sem eru lög­bundin fram­lög og þau munu þurfa að duga.

Mér er spurn: Hver er það hjá Við­reisn sem að kostar öll flettiskiltin og aug­lýs­ing­arnar um almanna­hags­muni umfram sér­hags­muni?

Það er auð­vitað ekki hvað við stjórn­mála­menn segj­um, heldur er það verkin okkar sem að skil­greina okkur og segja til um mann­kosti og fyr­ir­ætl­an­ir. Besta leiðin til þess að spá fyrir um hegðun og gjörðir okkar mann­anna er að skoða hvað við höfum áður gert. Það er besta for­spár­gild­ið.

Í máli eftir máli á þingi hefur Björt fram­tíð barist með almanna­hags­munum gegn sér­hags­mun­um. Við höfum barist fyrir erf­iðum mál­um. Við höfum ekki keypt okkur inn á Alþingi með gylli­boðum um ókeypis pen­inga. Þannig börð­umst við á móti skulda­nið­ur­fell­ing­unni. Það eru alltaf skatt­greið­endur sem borga. Við börðum á móti búvöru­lög­unum og við berj­umst á móti skattaí­viln­unum sem hafa nær ein­göngu farið til álfyr­ir­tækj­anna.

Því er fárán­legt að heyra þennan mál­flutn­ing núna frá fram­bjóð­anda Við­reisnar sem að var bein­línis á launa­skrá við að sinna sér­hags­munum .

Svo er nú annar fram­bjóð­andi sem þarf nú virki­lega að leggja lykkju á leið sína til þess að útskýra það hvernig hún hef­uri ekki sinnt sínum sér­hags­munum umfram ann­arra þegar hún sem ráð­herra sinnti mál­efnum Kaup­þings þar sem fjöl­skylda hennar fékk nið­ur­felld 2 millj­arða króna kúlu­lán. Hve oft vék hún af þing­flokks­fundum og af rík­i­s­tjórna­fundum þegar mál­efni Kaup­þings voru rædd?“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None