Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra og Hjörleifur B. Kvaran, lögmaður Landeigendafélags Geysis ehf., undirrituðu í dag samning um kaup ríkisins á öllum eignarhluta landeigendafélagsins á Geysissvæðinu. Kaupverðið hefur ekki verið ákveðið en samkvæmt samningnum verður það lagt í mat þriggja dómkvaddra matsmanna. Frá þessu er greint á vef fjármála- og efnahagsráðuneytisins. Málið var kynnt, og samþykkt, á ríkisstjórnarfundi fyrr í dag.
Svæðið innan girðingar á Geysi er um það bil. 19,9 hektarar að stærð. Innan þess svæðis á ríkið sem séreign um 2,3 hektara lands fyrir miðju svæðisins en þar eru hverirnir Geysir, Strokkur, Blesi og Óþverrishola. Það sem eftir stendurm um 17,6 ha., er í sameign ríkisins og Landeigendafélagsins. Ríkið hefur um margra ára skeið átt í viðræðum við sameigendur sína innan girðingar á Geysissvæðinu um hugsanleg kaup ríkisins á eignarhluta þeirra og deilur hafa staðið yfir um rétt landeigendanna til að rukka inn á svæðið.
Við undirritun samningsins tók ríkið formlega við umráðum alls lands sameigenda innan girðingar við Geysi. Þar með er ríkið orðið eigandi alls þess svæðis, en ríkið á þegar stóran hlut aðliggjandi landssvæða utan girðingar. Í frétt ráðuneytisins segir að samningurinn marki „tímamót því hann auðveldar heildstæða uppbyggingu á svæðinu í samræmi við niðurstöðu í hugmyndasamkeppni um Geysissvæðið sem haldin var fyrir nokkrum misserum.“