Stjórnarandstaðan segir enga sátt um tillögur ríkisstjórnarinnar

Minnihlutinn á Alþingi kynnti í dag tillögur sínar að breytingum á almannatryggingafrumvarpinu.

oddný harðardóttir birgitta jónsdóttir katrín jakobsdóttir óttarr proppé
Auglýsing

Stjórn­ar­and­stöðu­flokk­arnir á Alþingi lýsa allir veru­legum von­brigðum með þá leið sem valin hefur verið til að hækka greiðslur almanna­trygg­inga, og segja að sú leið tryggi ekki að greiðslur almanna­trygg­inga fylgi þróun lág­marks­launa og verði 300 þús­und krón­ur. 

Sam­fylk­ing­in, Vinstri-græn, Björt fram­tíð og Píratar héldu sam­eig­in­legan blaða­manna­fund í dag þar sem kynntar voru til­lögur flokk­anna í mála­flokkn­um. 

Flokk­arnir segja að aðeins hluti aldr­aðra og öryrkja muni fá þær hækk­anir sem boð­aðar hafa verið með til­lögum rík­is­stjórn­ar­innar að breyt­ingum á almanna­trygg­inga­frum­varp­inu sem nú er í vinnslu á Alþingi. Eldri borg­arar og öryrkjar í sam­búð séu skildir eftir og tekju­skerð­ingar auk­ist hjá ákveðnum hóp­um. „Rík­is­stjórnin ætlar séað ná fram sparn­aði með því að hækka þá sem búa með öðrum hlut­falls­lega minna og ná síðan 280.000 kr. mark­inu fyrir þá sem búa einir með því að auka skerð­ing­ar. Þannig er í raun verið að inn­leiða sam­búð­ar­skatt á líf­eyr­is­þega og auka skerð­ing­ar­hlut­föllin hjá þeim sem búa ein­ir. Þessi munur mun síð­an aukast enn meira árið 2018. Þetta er ósann­gjörn leið sem grefur und­an trausti og sam­stöðu um gott almanna­trygg­ingakerf­i.“ 

Auglýsing

„Til­lögur rík­is­stjórn­ar­innar eru að hækka elli­líf­eyri um 7,1% fyrir eldri borg­ara í sam­búð. Sú hækkun er lægri en hækk­anir á vinnu­mark­aði. Heim­il­is­upp­bót er hækkuð en hún fer til eldri borg­ara sem búa einir og þannig ná kjör þeirra 280.000 kr. sem eru lág­marks­laun árið 2017. Þessar breyt­ingar þýða að eldri borg­ari í sam­búð fær 227.883 krónur á mán­uði eftir hækk­un­ina en sá sem býr einn fær til við­bótar 52.117 kr. í heim­il­is­upp­bót. Í til­lögum rík­is­stjórn­ar­innar er skerð­ingin á heim­il­is­upp­bót hækkuð í 56,9%,“ segir í til­lögum minni­hlut­ans, sem seg­ist leggja til rétt­lát­ari leið og hækka elli­líf­eyri um 13,4%. „Þá fær eldri borg­ari sem býr með öðrum 241.300 kr. á mán­uði eða um 13.400 kr. meira á mán­uði miðað við til­lögur rík­is­stjórnar­inn­ar. Eldri borg­ari sem býr einn fær 280.000 kr. eins og í til­lögum rík­is­stjórn­ar­innar en hlutur heim­il­is­upp­bót­ar­innar í þeirri greiðslu er minni og skerð­ingu á henni er haldið óbreyttri eða 52,5%.“ 

Til­lögur rík­is­stjórn­ar­innar gagn­vart öryrkjum eru eins, hækkun upp á 7,1% fyrir öryrkja sem eru í sam­búð en hækkun fram­færslu­upp­bótar hjá þeim sem búa ein­ir. Það þýði að öryrki sem býr með öðrum fær 227.883 krónur á mán­uði en sá sem býr einn fær 280 þús­und krón­ur. „Skerð­ingar hans vegna ann­arra tekna aukast því sér­staka fram­færslu­upp­bótin fær hlut­falls­lega meira vægi í heild­ar­greiðsl­u­m,“ segir minni­hlut­inn. Fram­færslu­upp­bótin skerð­ist líka króna á móti krónu og vægi slíkra skerð­inga því auk­ið. 

Minni­hlut­inn vill hækka líf­eyr­is­greiðslur öryrkja um 13,4% eins og hjá öldruð­u­m. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None