Ragnheiður Elín Árnadóttir, iðnaðar- og viðskiptaráðherra, hefur heimilað Landsneti að framkvæma eignarnám á landsréttindum á jörðinni Reykjahlíð vegna lagningar Kröflulína 4 og 5. Háspennulínurnar liggja frá Kröflu að Þeistareykjum og þaðan að iðnaðarsvæðinu á Bakka við Húsavík.
Fram kemur í tilkynningu frá ráðuneytinu að eignarnámsbeiðnin hafi verið til meðhöndlunar í ráðuneytinu frá því í september 2015. Vegna dóma Hæstaréttar frá því í vor vegna Suðurnesjalínu 2 taldi ráðuneytið að rannsaka þyrfti betur möguleika á því að leggja viðkomandi raflínur í jörðu og óskaði því eftir upplýsingum frá Landsneti um samanburð á þeim valkostum. Þegar þau gögn lágu fyrir var skorað á Landsnet, sem eignarnámsbeiðanda, og landeigendur á staðnum að skoða málið í ljósi nýrra upplýsinga og reyna að ná samningum.
„Eftir þessa áskorun náðust samningar við þrjá landeigendur til viðbótar og því var eignarnámsbeiðni hvað þá varðar dregin til baka 19. ágúst síðastliðinn.
Eftir ítarlega gagnaöflun og rannsókn ráðuneytisins á öllum málavöxtum og sjónarmiðum eignarnámsbeiðanda og eignarnámsþola telur ráðuneytið að málið sé nægilega upplýst til ákvörðunar og að öll lagaskilyrði fyrir heimild til eignarnáms séu fyrir hendi. Var því í dag gefin út ákvörðun um að heimila eignarnám á því landi sem um ræðir.
Í ákvörðun um að heimila eignarnám felst ákveðinn afnotaréttur af viðkomandi jörðum fyrir Landsnet í þágu framkvæmdarinnar. Um bætur vegna eignarnámsins fer samkvæmt lögum um framkvæmd eignarnáms og sker matsnefnd eignarnámsbóta úr ágreiningi um eignarnámsbætur,“ segir í fréttatilkynningu frá iðnaðar- og viðskiptaráðuneytinu.