Ríkið heimilar eignarnám vegna Kröflulínu

Ragnheiður Elín Árnadóttir
Auglýsing

Ragn­heiður Elín Árna­dótt­ir, iðn­að­ar- og við­skipta­ráð­herra, hefur heim­ilað Lands­neti að fram­kvæma eign­ar­nám á lands­rétt­indum á jörð­inni Reykja­hlíð vegna lagn­ingar Kröflu­lína 4 og 5. Háspennu­lín­urnar liggja frá Kröflu að Þeista­reykjum og þaðan að iðn­að­ar­svæð­inu á Bakka við Húsa­vík. 

Fram kemur í til­kynn­ingu frá ráðu­neyt­inu að eign­ar­náms­beiðnin hafi verið til með­höndl­unar í ráðu­neyt­inu frá því í sept­em­ber 2015. Vegna dóma Hæsta­réttar frá því í vor vegna Suð­ur­nesja­línu 2 taldi ráðu­neytið að rann­saka þyrfti betur mögu­leika á því að leggja við­kom­andi raf­línur í jörðu og óskaði því eftir upp­lýs­ingum frá Lands­neti um sam­an­burð á þeim val­kost­um. Þegar þau gögn lágu fyrir var skorað á Lands­net, sem eign­ar­náms­beið­anda, og land­eig­endur á staðnum að skoða málið í ljósi nýrra upp­lýs­inga og reyna að ná samn­ing­um. 

Eftir þessa áskorun náð­ust samn­ingar við þrjá land­eig­endur til við­bótar og því var eign­ar­náms­beiðni hvað þá varðar dregin til baka 19. ágúst síð­ast­lið­inn.    

Auglýsing

Eftir ítar­lega gagna­öflun og rann­sókn ráðu­neyt­is­ins á öllum mála­vöxtum og sjón­ar­miðum eign­ar­náms­beið­anda og eign­ar­náms­þola telur ráðu­neytið að málið sé nægi­lega upp­lýst til ákvörð­unar og að öll laga­skil­yrði fyrir heim­ild til eign­ar­náms séu fyrir hendi. Var því í dag gefin út ákvörðun um að heim­ila eign­ar­nám á því landi sem um ræð­ir.

Í ákvörðun um að heim­ila eign­ar­nám felst ákveð­inn afnota­réttur af við­kom­andi jörðum fyrir Lands­net í þágu fram­kvæmd­ar­inn­ar. Um bætur vegna eign­ar­náms­ins fer sam­kvæmt lögum um fram­kvæmd eign­ar­náms og sker mats­nefnd eign­ar­náms­bóta úr ágrein­ingi um eign­ar­náms­bæt­ur,“ segir í frétta­til­kynn­ingu frá iðn­að­ar- og við­skipta­ráðu­neyt­in­u. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None