Jóhannes Rúnar hættur störfum fyrir Kaupþing

Jóhannes Rúnar
Auglýsing

Jóhannes Rúnar Jóhanns­son hrl., sem setið hefur í stjórn Kaup­þings og sat áður í skila­nefnd og slita­stjórn Kaup­þings, hefur ákveðið að segja sig úr stjórn félags­ins. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu Kaup­þingi.

Jóhannes Rúnar var skip­aður í skila­nefnd í októ­ber 2008 í kjöl­far þess að Kaup­þing (þá Kaup­þing banki hf.) féll eins og spila­borg, ásamt Glitni og Lands­bank­an­um.



Jóhannes var skip­aður í slita­stjórn Kaup­þings í jan­úar 2012 í kjöl­far þess að skila­nefnd var lögð nið­ur. Jóhannes gegndi lyk­il­hlut­verki í end­ur­skipu­lagn­ingu Kaup­þings sem lauk í des­em­ber 2015 þegar nauða­samn­ingur félags­ins við kröfu­hafa var end­an­lega stað­fest­ur. Jóhannes sat í bráða­birgða­stjórn Kaup­þings fram til mars 2016 og frá þeim tíma í stjórn félags­ins.

Haft er eftir Jóhann­esi Rún­ari í til­kynn­ingu, að eftir átta áhuga­verð og krefj­andi ár í vinnu fyrir Kaup­þing þá ætli hann að leita á önnur mið. „Mik­ill árangur hefur náðst á þeim tíma sem liðið hefur frá nauða­samn­ingi Kaup­þings og er félagið byrjað að greiða út til hags­muna­að­ila þess og áætl­anir liggja fyrir um hvernig undið verður ofan af starf­semi félags­ins. Ég tel því að nú sé réttur tími fyrir mig að segja mig úr stjórn félags­ins og leita á önnur mið. Ég er mjög stoltur af því sem við höfum áorkað hjá Kaup­þingi og vil nota tæki­færið til að þakka öllum þeim sem lögðu hönd á plóg við að ná þeim árangri, ekki síst starfs­mönnum Kaup­þings.“

Auglýsing

Alan J. Carr, stjórn­ar­for­maður Kaup­þings, þakkar Jóhann­esi vel unnin störf. „Stjórn Kaup­þings þakkar Jóhann­esi fyrir vel unnin störf í þágu félag­ins og fyrir fram­lag hans á þeim umbreyt­ing­ar­tímum sem fylgdu í kjöl­far nauða­samn­ings þess. Við óskum honum vel­farn­aðar í fram­tíð­ar­verk­efnum hans.“

Stærsta ein­staka inn­lenda eign Kaup­þings er 87 pró­sent eign­ar­hlutur í Arion banka, en hlut­ur­inn er í sölu­ferli.

Arion banki.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None